Enginn hefur haldið því fram að húsfélagsfundirnir séu skemmtilegir. En flestir mæta. Það er aldrei að vita hvað getur gerst. Hver veit nema einhverjum spekingnum detti í hug að bera fram tillögu um hækkun hús-gjaldsins.
Tumi hafði starfað í fjörutíu ár í pípulögnum, þar af þrjátíu ár sem meistari. Farsæll í starfi, að minnsta kosti að eigin áliti.
Sómakonan var sextug. Fjölskylda og vinir fylltu hvern krók og kima í rúmgóðu einbýlishúsi þeirra hjóna til að samfagna. Hnallþórur, brauðtertur, flatkökur og margs konar góðgæti var fram borið.
Á fyrri hluta þessarar aldar voru fluttir inn tveir forlátahrútar sem gagnast skyldu ám þessa lands miklu fremur en þeir innlendu. Með þeim kom þó annað og meira en kynbætur, sjúkdómar einn ógurlegur, nefndur mæðiveiki.
Fyrir fimmtíu árum var Kópavogur ein sérkennilegasta byggð þessa lands. Fámenn byggð, íbúarnir fátækir. Vegaslóðar frumstæðir. Holræsakerfi ekki til. Þetta mátti svo sem allt þola. En það var engin vatnsveita í Kópavogi.
Við höfum öll reist handa þeim höll. Þar er ætíð glatt á hjalla. Það er glaumur og gleði sólarhringana út.
Frá því pípulöðin hófst fyrir alvöru, um síðustu aldamót, hafa verið notaðar pípur og tengi úr margskonar efnum og mismunandi tækni við tengingar. Pípur eru skrúfaðar saman, log- og rafsoðnar, lóðaðar eða tengdar með ýmiskonar þrýstitengjum.
Sumarið er stutt og sólskinsstundir oft fáar. Þannig er veðráttan á okkar kalda landi. Er þá ekki sjálfsagt að nýta þær fáu sólskinsstundir sem gefast og reyna að lengja sumarið?
Það gerist stundum í gömlum húsum að upp gýs ólykt. Þá er oft til lítils að líta hver á annan með ásökun í svipnum.
Fyrir rúmum þrjátíu árum var það ríkjandi hefð að setja flestar lagnir í raufar í gólfplötum húsa. Einhver spekingurinn fann upp á því til viðbótar að nota víkur eða rauðamöl yfir rörin til einangrunar.
Lagnamenn fara ekki varhluta af þeim samdrætti sem er í þjóðfélaginu. Vinna hefur dregist mikið saman og hinir fjölmörgu einyrkjar í röðum pípulagningamanna hafa orðið á milli stafs og hurðar.
Er það til of mikils mælst að menn muni hvað þeir lásu í dagblaði fyrir viku? Oft vill það vefjast fyrir manni en þó eftir því hve athyglisvert efnið var.
Flest vatnshitakerfi eru ofnakerfi, en gólfhitakerfi vinna á og líklegt er að vinnslustu hitakerfin í framtíðinni verði blanda af ofnakerfum og gólfhita.
Við lifum á sannkallaðri sérfræðingaöld. Sama hvert litið er. Á öllum sviðum þjóðlífsins er þetta þróunin.
Hvenær byrjaði maðurinn að nota rör til að leiða vatn? Seint verður úr því skorið með nokkurri vissu en saga lagnanna er miklu eldri en margan grunar og saga þeirra er þekkt aftur í aldir.
Snyrtimennska var honum ekki í blóð borin. Lagði meira upp úr afköstunum. Lárétt og lóðrétt voru ekki hans ær og kýr.
Hann byggði villuna sína fyrir nokkrum árum. Tískuarkitekt og færstu verkfræðingar hönnuðu.
Þau voru lengi búin að hugsa um það, hjónin á efstu hæðinni. Fært það í tal við hjónin á fyrstu hæðinni og roskna ekkjunamanninn á miðhæðinni.
Þá er komið að því. Það á að leggja nýjar lagnir í þetta gamla hús. Hvaða lagnaefni á að velja? Er um nokkuð að velja? Er ekki sjálfsagt að nota þessi góðu gömlu þungu snittuðu járnrör; svört í hitalögnina en galvaniseruð fyrir heitt og kalt vatn.
Þetta látum við málfræðingum eftir og höldum áfram að kalla koparinn eir. Vonandi hefur enginn ruglast í þessum stutta inngangi.
Áður fyrr fengum við efni lánuð frá náttúrunni til að smíða úr verkfæri og aðra nytjahluti. Já, „lánuð“ er í raun rétta orðið því að í raun tókum við efnin, smíðuðum úr þeim, en þau fengu að halda sínum eiginleikum áfram.
Í útlandinu er víða bannað að troða lögnum inn í veggi. Þetta hefur ýtt undir þróun fjölbreyttari lagnaefna.
Margur hefur fengið skell á hálum tröppum. Í dag mun það tæpast þekkjast á jarðhitasvæðum að ekki sé lögð snjóbræðsla í tröppur um leið og húsið er byggt.
Plaströr eru svo sjálfsagður hlutur í dag að mörgum mun koma á óvart hve stutt er síðan notkun þeirra hófst hérlendis. Frumherjinn hér á landi er tvímælalaust Reykjalundur.
Pípulögn var lokið. Múrhúðun var lokið. Stigahúsið nálgaðist að vera það sem kallast tilbúið undir tréverk. Múrararnir voru búnir, samkvæmt hefðinni, að hlaða virkisvegg úr víkurplötum utanum allar lagnir í baðherbergjum og pússa vandlega.
Það er kreppa, segja menn. Allir eru að tala um kreppuna og að eitthvað þurfi að gera til að auka atvinnu. Sumir gera eitthvað, aðrir láta sér nægja að tala, sumir gera ekkert og þegja líka.
Þvílík örlög. Líttu í eigin barm, engum er sama hvert er hans starfsheiti. Þau þróast eins og annað, ósjálfrátt eða eftir stýringu.
Fyrst svolítið um ástkæra, ylhýra málið. Eigum við að veita þessum tveimur orðum, túr og retúr, þegnrétt í íslensku?
Við fengum aðvörun. Orð í tíma töluð. Heita vatnið, sem rennur um ofan og úr krönum, er ekki óþrjótandi.
Ekkert upphitunarkerfi hefur átt við jafnmikla fordóma að stríða hérlendis og gólfhiti. Ástæðan er sú að fyrir fjörutíu árum tókum við upp á okkar arma nýtt hitakerfi sem nefnist geislahiti.
Sértu að byggja nýtt hús, eignast íbúð eða endurnýja gamla er eitt öruggt. Þú leggur ekki hvað minnsta áherslu á að gera baðherbergið vel úr garði.
Svo undarlegt sem það er þá virðist nútímatæknin vera að mörgu leyti ófullkomin eða öllu heldur þekking okkar. Þó kallast margir sérfræðingar, hver á sínu sviði.
Í rauninni flytur vélbúnaður varmann, sem er í kjötinu, smjörinu og mjólkinni, út fyrir skápinn. Elementið aftan á skápnum sér svo til þess að losna við varmann út í andrúmsloftið.
Einhver stórfenglegustu listaverk í heimi eru freskur Michelangelos í Sixtínsku kapellunni í Róm. Í næstum 500 ár hafa freskurnar mátt þola hverskonar ágang umhverfisins.
Nútíminn krefst hreinlætis. Stundum gengur þetta út í öfgar, sumir halda að best sé að búa í dauðhreinsuðu umhverfi; öllum örverum skuli útrýmt.
Njáll á Bergþórshvoli hefur löngum verið talinn einn af helstu spekingum og vitmönnum landnámsaldar. Sumir halda því fram að sú frásögn flökkukvenna að „Njáll hafi ekið skarni á hóla“ sanni að Njáll hafi verið á undan samtíðarmönnum sínum; hann einn hafi skilið þýðingu skarnsins fyrir gróður og grös.
Ef spurt yrði hvað það væri sem þú vildir helst endurnýja í íbúðinni er ekki ólíklegt að svarið yrði; baðherbergið. Sumir kalla það að bera í bakkafullan lækinn að vera sífellt að hamra á því sama þó enginn taki eftir því.
Á þessum þurru, sólríku aðfaradögum vorsins geysa víða eldar í skraufþurri sinu. En það logar víðar. Í hverri viku berast fréttir af eldsvoðum.
Eflaust eru flestum í fersku minni átök og deilur um endurbyggingu Þjóðleikhússins. Aðallega var deilt um hvort nokkru mætti breyta frá upphaflegri teikningu Guðjóns Samúelssonar húsameistara.
Vorverkin eru að byrja. Það kann því að þykja mótsögn að fylla einn pistil af svo kuldalegu efni sem snjóbræðslu. En það er nú einu sinni svo að framkvæmdir utanhúss fylgja fyrst og fremst vori og sumri.
Eitt er víst; svo lengi sem mannkynið er við lýði verður hver og einn að ganga örna sinna, sama hvort um kóng eða kramaraumingja er að ræða. Í þéttbýlinu höldum við að lausnin sé að leggja lengri og lengri frárennslissveitur langt út í sjó með rándýrum hreinsi- og/eða dælistöðvum við strendur.
Er það nokkur furða þó sumarbústaður og sveit séu ofarlega í hugum fólks á þessum árstíma? Það er sagt að Íslendingar séu allir sveitamenn í eðli sínu.
Finnst olía við Ísland? Verðum við olíuveldi eins og Noregur? Er það ekki eina von Færeyinga að olía finnist á þeirra landgrunni?
Ef þú gengur um íbúðina með gagnrýnum huga muntu koma auga á margt. Hvers vegna er þetta svona? Hvers vegna hefur arkitektinn ákveðið þetta?
Bernskuminningar úr æsku eru margvíslegar og flestar ljúfar. Hin óþægilegri atvik hafa, sem betur fer, þá tilhneigingu að gleymast.
Vísindaskáldsögur hafa verið og eru uppáhaldslestur margra. Þar er reynt að skyggnast inn í framtíðina; menn þjóta um himingeiminn á hraðskreiðum geimförum og skreppa til Mars í helgarfrí.
Hvergi í iðnvæddum löndum hafa menn verið jafn íhaldssamir á lagnaefni innanhúss og hérlendis. Að sjálfsögðu hefur þar ráðið ferðinni, að nokkru, varkárni og er það að vissu leyti góðra gjalda vert.
Meðal þess sem heldur þjóðrembu okkar við lýði er jarðvarminn, virkjun hans og notkun. Vissulega er það lítið okkur mörlandanum að þakka að hér í jörðu sé finnanlegt heitt vatn og gufa.
Fram eftir þessari öld var ekki haldinn svo ungmennafélagsfundur að ekki væri samþykkt harðorð tillaga, sem beindist að Dönum; handritin heim og engar refjar.
Bygging hússins hefur tekið mörg ár. Þó er ýmsu ólokið. Reisulegt hús á fögrum stað, stór stofa snýr gluggum til vesturs, síðdegissólin hellir geislum sínum inn í hvern krók og kima.
Athyglisverður dómur féll við viðskiptadómstólinn í Vínarborg í Austurríki í nóvember á síðasta ári. Dómstóllinn dæmdi grænfriðunga til að hætta herferð sinni gegn PVC-plasti og draga til baka fullyrðingar um efnið þar sem þær væru rangar og sköpuðu óróa í viðskiptum að ástæðulausu.
Okkur sem sitjum hér á suðvesturhorni landsins hættir til að hafa nokkuð þröngan sjóndeildarhring. Þetta á við um lagnamál og upphitun húsa sem annað.
Landinn hefur verið á faraldsfæti á þessu sumri, ekki síst innanlands. Þar kom að því að við færum að skoða þetta fagra land, sem við höfum eytt milljónum í að gylla fyrir útlendingum með þó nokkrum árangri.
Meðal margra mikilvægra verkefna lagnamanna er að bæta vinnuumhverfi margra stétta. Það er þeirra hlutskipti að hanna og leggja hita- og loftræstikerfi.
Þetta er ekki allskostar rétt. Þeir áttu að setjast á skólabekk, en örfáir mættu. Og hvað áttu þeir að læra? Að teikna og hanna byggingar þannig að tillit sé tekið til lagnakerfa, til þeirra sem leggja kerfin og til þeirra sem eiga að sjá um kerfin eftir að byggingar hafa verið teknar í notkun.
Á grundvelli vel unninnar skýrslu, þar sem skráð eru 100 vatns- og lagnatjón, hefur þetta verið áætlað. Skýrslan var unnin af Rannsóknarstofnun byggingaiðnaðarins með tilstyrk tryggingafélaga, en hjá þeim eiga að vera mikilvægar upplýsingar um tjónabætur vegna vatnsskaða.
Í hvert skipti sem konan á þriðju hæðinni fer um stigaganginn opnar hún alla glugga. Þegar karlinn á fjórðu hæð fer þar um lokar hann öllum gluggum.
Hérlendis virðast flestir halda að orka, loft og heitt og kalt vatn séu ótæmandi og óþarfi sé að spara þessi gæði. Þó á það fyrst og fremst við þá sem eru svo heppnir að búa á ódýrum orkusvæðum eins og höfuðborgarsvæðinu.
Þegar vetur gengur í garð kemur margt í ljós sem betur mætti fara. Ýmislegt sem betur hefði verið kíppt í liðinn fyrr. Hálkan komin og vetrardekkin inni í geymslu.
Eldri húsum, víða um land, er fólk að fást við sömu vandamálin. Vandamál sem í sumum tilfellum er tiltölulega auðvelt að leysa.
Stórt er spurt. Er einhver ástæða til að ræða það á opinberum vettvangi? Er þetta ekki einkamál lagnamanna? Síður en svo.
Hvað hefur söfnunargildi? Eitthvað sem er gamalt og fágætt kemur fyrst í hugann. Þurfa hlutir að vera gamlir og fágætir?
Maðurinn er í eðli sínu íhaldssamur. Við erum ekki að tala um pólitík heldur lífsstíl. Þetta á ekki síst við hús og hýbýli eða flest það sem í kringum okkur er.
Í gegnum tíðina hefur mannskepnan búið til ýmislega kvarða til að mæla hitt og þetta. Til að gera sér ljóst hvað kjöt kostar er ekki nóg að vita hvað lambalæri kostar, það er nauðsynlegt að vita hvað það er þungt.
Þeim fer fækkandi sem ólust upp við útikamar og ekkert bað. Stóri balinn á eldhúsgólfi eða auður bás í fjósi var baðið.
Meðan fjölmörg lönd hafa notað sorpkvarnir í fjölda mörg ár með góðum árangri er hún nánast fordæmd hérlendis. Þar förum við að dæmi Skandínava, en hirðum ekki um langa og góða reynslu Bandaríkjamanna.
Svartasta skammdeginu fylgir mikil ljósadýrð. Hver krókur og kimi er upplýstur, hvort sem er utan dyra eða innan. Raforkan úr fallvötnunum gerir okkur þetta kleift.
Hvar verður Lagnasafnið, var spurt í pistli fyrir stuttu. Eitt er víst; á þeirri stundu, sem þau orð voru sett á blað, var bjartsýni höfundar ekki meiri en svo að slíkt safn yrði ekki að veruleika fyrir aldarmót, ef raunsætt væri skoðað.
Áramót eru nýliðin. Hverju eigum við að búast við á nýbyrjuðu ári? Svörin verða ekki að fullu komin fyrr en það er liðið; reynslan verður að skera úr.
Hvarvetna í iðnpróuðum ríkjum er leitað nýrra leiða til að spara orku. Enda engin furða; mengun frá olíu- og kolabrennslu er gífurlegt vandamál, kjarnorkuverin eru ógnvekjandi vá heillu manna og dýra.
Fyrir rúmum tveimur áratugum hófst nýr kafli í nýtingu á heitu vatni hérlendis. Samfelld saga snjóbræðslukerfa hófst 1973, þá hófst þetta sem hægt er að kalla „snjóbræðsluævintýrið“ sem byggðist bæði á nýjum tæknilegum lausnum og tilkomu heppilegra plaströra.
Hvað er votrými kann margur að spyrja. Það er þar sem flestir vatnsskaðar verða í húsum, en þó ekki allir.
Einn af okkar fremstu fiðluleikurum hélt tónleika á Kjarvalsstöðum og flutti verk eftir fjögur íslensk tónskáld, látna og lifandi. Það er of seint að njóta þessara „myrku músíkdaga“ enn ekki úr vegi að lesa hvað tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins hefur um tónleikana að segja.
Það er ekki fyrr en þægindi hverfa að við tökum eftir þeim. Við búum við þau ár eftir ár, þau eru sjálfsagður hlutur.
Mikið lifandis skelfing eigum við Íslendingar langt í land með að kunna að meta undirbúning verka. Fáir þættir eru jafn vanmetnir og hönnun, áætlanir og undirbúningur hverju nafni sem hann nefnist.
Á hátíðum og tylillidögum er það sjálfsögð skylda landsfeðra að mæra íslenzka náttúru, sérdeilis þó hreina loftið og heimsins besta vatn. Allt er þetta gott og blessað, þó ekki sé allt sem sýnist.
Kjarvalsstaðir voru hannaðir og byggðir sem listasafn, safn til að sýna hvers kyns myndverk. Um þetta liggja fyrir skjaldfestar og votttfestar sannanir, sumar hverjar nýjar af nálinni.
Endurreisn Súðavíkur er hafin. Samkeppni hefur farið fram um skipulag nýrrar byggðar, hönnun húsa og lagna er að hefjast.
Viðamesta sýningar- og kaupstefna lagnamanna 1995 fór fram í Frankfurt í Þýskalandi síðustu viku marsmánaðar. Þar sýndu evrópsk fyrirtæki það nýjasta í lagnatækni, hvort sem það eru hitakerfi, neysluvatnskerfi, frárennsliskerfi eða loftræstikerfi.
Það er vandi að velja og hafna; það var svo margt áhugavert að sjá á lagnasýningunni í Frankfurt. Yfirgengilegt úrval af blöndunartækjum, aðallega frá Ítalíu, ekki minna úrval af hreinlætistækjum, þar sem hver framleiðandinn reynir að komast fram fyrir hinn í frumleika.
Á ráðstefnu Lagnafélags Íslands á Akureyri bar reglugerðir oft á góma. Íslendingar eru með fádæmum reglugerðaglaðir en líka jafnkærulausir um að fara eftir þeim eða endurnýja þær eftir breyttum aðstæðum.
Ný lög um fjöleignahús hafa tekið gildi. Ýmsir hafa horn í síðu nafnsins, vilja heldur segja fjölbýlishús en fjöleignahús.
Síðastliðið sunnudagskvöld héldu tveir fremstu fiðlusnillingar okkar tónleika í Hafnarborg í Hafnarfirði og leikmaður á sviði tónlistar getur aðeins þakkað fyrir sig og lýst hrifningu sinni, enda er þetta ekki vettvangur til að fjalla um listir.
Það er ef til vill að bera í bakkafullan lækinn að tuða enn gegn innmúruðum baðkerum, en stundum telja menn sig svo vissa í sinni sök eða hafa svo ákveðnar skoðanir (og réttar að eigin áliti) að þeir predika þær hvar og hvenær sem er, eða var það ekki Kató hinn gamli sem lauk hverri ræðu með orðunum
Sjálfvirkir ofnlokar eru hitastillar. Þess vegna á aldrei að nota þá eins og krana í vaski, annað hvort lokaðir eða fullopnir. Ef það á að auka eða minnka hitann, færðu aldrei meira í einu en sem nemur 1/3 á milli talna. Það nægir í flestum tilfellum.
Þau voru nýflutt inn, ung, dugleg og bjartsýn þrátt fyrir mikið stríð við að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Margt var enn ógert, en flest þægindi þó komin, auðvitað af nýjustu og bestu gerð.
Oft er fullmikið sagt þegar fullyrt er að hugmynd sé ný, en sá sem ekki hefur kynnst henni fyrr leyfir sér að fullyrða að svo sé. Í baðherberginu reynir meira á samvinnu tæknilegs hönnuðar, þess sem hannar lagnir annarsvegar og útlitshönnuðar, þess er hannar útlit og velur tæki, sem oftast er arkitekt hússins eða innanhússarkitekt í samvinnu við húséiganda.
Nýlokið er samkeppni, sem Lagnafélag Íslands og tímaritið Arkitektúr, verktækni og skipulag stóðu fyrir, en fleiri samtök studdu keppnina með því að tilnefna menn í dómnefnd og Samband tryggingafélaga veitti fé til verðlaunagjafa.
Það er ekki nokkur vafi á því að plaströr eru framtíðarefni í húsalögnum hérlendis. Plastið mun þó enganveginn útrýma öðrum efnum; efnisvalið fer eftir aðstæðum á hverjum stað.
Aldrei verður fullyrt með vissu hvar fyrsta hitakerfið var lagt og hver gerði það, kerfi sem byggðist á því að hita upp vatn og láta það streyma um pípur og ofna og skila varma til allra híbýla. Oftast er miðað við árið 1792, þegar miðstöðvarhitun var lögð í Englandsbanka.
Það er fróðlegt að líta yfir þróun húsalagna hérlendis á þessari öld. Það sem vekur nokkra undrun er hvað lítið hefur breyst á sumum sviðum, þar má nefna þykku, þungu snittuðu járnrörin og klossalegu tengin, ýmist hefur þetta lagnaefni verið notað svart í hitalagnir eða galvanhúðað í neysluvatnslagnir.
Smátt og smátt eru flestir að vakna af vatnsskaðasvefninum. Það á vonandi jafnt við um alla, hönnuði, iðnaðarmenn, húsbyggjendur, húseigendur og allan almenning.
Undir öllum götum í borgum og bæjum er víðáttumikið frárennsliskerfi, í flestum tilfellum eru þessi kerfi lögð úr steinsteyptum rörum. Ending þeirra er misjöfn, í flestum tilfellum góð, en tvennt er það sem þar ræður úrslitum; að rörin séu vönduð, úr sterkri steypu og að lögn og frágangur í upphafi sé góður.
Það hljóp á snærið hjá Austureyfingum þegar heitt vatn streymdi upp úr borholu, það hljóti allir að gleðjast yfir því ef þessi fagra sveit getur hætt að brenna olíu sér til hitunar og notað til þess í staðinn heitt, tært vatn úr iðrum jarðar, ekki síður verður þægilegt að fá sundlaug í sveitina til hollustu og líkamsræktar.
Sú var tíðin að allar frárennslislagnir undir botnplötu húsa voru úr steinrörum, en svo héldu plaströr innreið sína og í dag er það undantekning að steinrör séu notuð innan sökkla.
Bölsýni gætir meðal byggingamanna þessa lands, atvinnuhorfur á næsta vetri og næstu misserum eru dapurlegar, stjórnarmenn hjá ríki og bæjum eru gagnrýndir fyrir að draga úr framkvæmdum, nýjar íbúðir standa auðar og seljast ekki.
Stundum fer svo að mönnum fallast hendur áður en byrjað er á verki. Þetta á ekki síst við þegar ætlunin er að endurnýja eldra húsnæði. Erfiðasti þröskuldurinn er að brjótast út úr hefðbundnum þankagangi.
Gólfhiti er ein af mörgum tegundum hitakerfa, sem byggjast á heitu vatni sem varmagjafa, þó er það ekki eingöngu vatnið sem flytur varmann; að lokum tekur loftið við honum og færir hann til okkar, hvort sem í húsinu er gólfhiti, ofnakerfi eða önnur vatnshitakerfi.
Fljótu bragði mætti álita að byggingaeftirlit komi ekki öðrum við en iðnmeisturum í byggingaiðnaði og byggingafulltrúum, sem taka út verk þeirra. En skoðum þetta aðeins nánar; allir þurfa þak yfir höfuðið og þessvegna kemur öllum við hvernig byggingaeftirlit er framkvæmt
Það getur hver litið í eigin barm, farðu fram eða niður í hitaklefa eða bílskúr og skoðaðu hitagrindina þar sem mælirinn er, sem telur hvað þú notar marga lítra af heitu vatni; þetta á að sjálfsögðu eingöngu við þá sem búa á hitaveitu- og fjarvarmasvæðum.
Að koma fleiri og fleiri tilfelli af biluðum lögnum í húsum, það er mjög eðlilegt, nánast öll hús hérlendis eru byggð á þessari öld og flest eftir miðja öldina. Þess vegna höfum við ekki haft svo mikið af úr sér gengnum lögnum í húsum, en nú má búast við að þeim fjölgi öfluga hvarvetna á landinu.
Það er ekki nýtt að sett séu lög og reglur um allt mögulegt undir sólinni, það eru líka sett lög um byggingar og lagnir.
Vetur er genginn í garð með kulda og umhleypingasömu veðri. Þá er gott að sitja á síðkvöldum við ljós og yl sem hjá flestum landsmönnum kemur frá jarðvarma.
Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur muna tímana tvenna og eflaust hvarflar hugurinn hjá mörgum til bernskuáranna þegar jólahátíðin gengur í garð.
Áramótaávarp forsætisráðherra var að mörgu leyti fagnaðarboðskapur. Hagur landsmanna er að vænkast, hagvöxtur eykst og atvinnuleysi minnkar. Vissulega ánægjulegur boðskapur sem líklegt er að rætist í það minnsta að hluta.
Það er kátt í höllinni hjá Dönum í þessu skammdegi, ekki aðeins að yngri prinsinn hafi fundið sér konu austur í Asíu og gengið í það heilaga með pompi og prakt, heldur tókst Norðmönnum að finna nýjar olíulindir um jólin á dönskum hafsbotni í Norðursjó.
Það er margt jákvætt að gerast í lagnamálum. Fleiri og fleiri gera sér grein fyrir því að það borgar sig að láta stilla hitakerfi, það sparar peninga og veitir aukin þægindi.
Það er ekki svo ýkja langt síðan að öll baðker voru úr steypujárni, þungir og traustvekjandi gripir. Síðan komu léttu baðkerin úr plötustáli og þau hafa verið nær allsráðandi hérlendis á síðustu tímum, en það örlar á því að steypujárnskerin sjáist oftar undanfarið, einkum eru það þeir sem ætlað er að standa frítt á gólfi, oft á skrautlegum fótum.
Enginn getur neitað því að sól hækkar á lofti og ekki heldur því að veðurblíðan í liðnum janúarmánuði var einstök. Það er því líklegt að margir séu farnir að hugsa til vorsins og jafnvel skipuleggja sumarfríið eða hugsa til sumarbústaðar, hvort sem menn eiga þá eða ekki.
Það sem hefur einkennt byggingamáta Íslendinga er hversu mikinn þátt byggjandinn hefur tekið í framkvæmdinni. Fyrir nokkrum áratugum var það nánast regla að hver og einn reyndi að vera sjálfum sér nógur, fékk lóð, byrjaði að grafa og slá upp fyrir sökklum með hjálp vina og vandamanna.
Nútímamaðurinn er að missa tengslin við uppruna sinn, stórborgarlífið hefur skorið á þau.
Þeim fer að fækka flugvélunum sem lenda á Fornebu-flugvelli við Ósló, nýr flugvöllur er í byggingu og nefnist Gardermoen. Mikið er vandað til flugstöðvarinnar og á hún að verða sýnishorn af norskri byggingarlist.
Getur þetta gengið upp að það sé kalt í húsinu en hitareikningarnir þó háir? Því miður er þetta ótrúlega algengt á höfuðborgarsvæðinu, vatnseyðslan mikil en hitinn lélegur.
Það er ekki langt síðan fjallað var um ryðmyndun í galvaníseruðum kaldavatnsleiðslum á höfuðborgarsvæðinu hér í pistli. Síðan hafa færari menn bætt um betur og á síðum Morgunblaðsins hafa birst viðtöl við sérfræðinga frá Rannsóknastofnun byggingaiðnaðarins og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Það er sama hvar borið er niður hérlendis varðandi öryggi og slysavarnir, allir hugsa það sama: „Það kemur ekkert fyrir mig“.
Fullyrðingar um hreint land og vatn hafa glumið í eyrum okkar undanfarið, það er verið að auglýsa íslenskar landbúnaðarafurðir. Fullyrðingar þessar má þó mjög draga í efa, vissulega er vatnið víða hreint, tært og heilnæmt, landið er enn víða óskaddað og meira að segja hafa landgæði sums staðar verið bætt með landgræðslu og skógrækt.
Gömlu eldstæðin höfðu marga kosti hvort sem það voru hlóðir, kolaeldavélar eða kolaofnar í heldri manna stofum en þeir voru jafnvel til hjá fátækara fólki. Arinmenning Bretanna fluttist ekki hingað að ráði fyrr en á þessari öld eftir að önnur upphitunarkerfi komu til sögu svo sem að nota heitt vatn úr jörðu.
Það er fleira í Vínarborg en tónlist, kaffihús og sagan sem streymir frá öllum hinum fornfrægu byggingum borgarinnar.
Það er sérkennileg þjóð sem býr á þessari eyju í Atlantshafi. Af mörgum sérkennum okkar erum við ákaflega stolt, stundum með réttu. En öðrum ættum við kannski ekki að flíka um of en það er önnur saga.
Miklar umræður og stundum heiftúðlegar hafa verið um stóriðju hérlendis og hatrómmust var hún þegar álverið í Straumsvík var í undirbúningi en sem betur fer hefur umræðan þróast á hófstilltari nótur.
Hroðalegar fréttir um hrikalega eldsvoða berast með öllum fjölmiðlum, eignatjón gífurlegt og mikill mildi að ekki varð manntjón. Áleitnar spurningar vakna; er þetta óumflýjanlegt, er ekkert hægt að gera til að koma í veg fyrir þessa verðmætasóun?
Því ölduróti sem er í lagnamálum hérlendis er nauðsynlegt að húsbyggjendur geti fengið óvilhallar og réttar upplýsingar um þau nýju lagnaefni sem eru komin á markað og eru að einhverju leyti að ýta eldri lagnaefnum til hliðar.
Vatnspósti, fréttabréfi Félags pípulagningameistara, eru tveir pistlar frá byggingafulltrúanum í Reykjavík, annars vegar um tæringu í kaldavatnsleiðslum og hins vegar um að á vegum Reykjavíkurborgar sé hafin endurskoðun á reglugerðum veitukerfa borgarinnar og er víst að allir þeir sem þurfa að nota þessar reglugerðir
Fjölbreytni málma í lögnum hefur löngum verið lítil hérlendis, notkun á zinkhúðuðum stálrörum, sem við í daglegu tali köllum galvaniseruð rör, hefur verið nær allsráðandi í neysluvatnslagnir.
Það hefur löngum loðað við opinber þjónustufyrirtæki, sem oftast hafa einkarétt á þjónustunni, að lipurð væri ekki sem skyldi og viðmót við þá sem á að þjóna ekki alltaf sem hlýlegast.
Fjölmörg hús hérlendis eru komin á þann aldur að talsvert viðhald er orðið nauðsyn og það fyrir alllöngu síðan. Mikill meirihluti byggðar innan hinna gömlu Hringbrautar í Reykjavík er undir þessa sök seldur og raunar heilu hverfin annarsstaðar í borginni.
Sóðaskapur er orðinn fátíður hérlendis, mikill tími og orka fer í að þvo gólf, vaska, leirtau, fara í sturtu og bursta tennur. Allt er þetta sjálfsagt og fleira svipað mætti telja.
Það hefur löngum verið talið erfitt að blanda saman vatni og olíu svo búast má við að flestir telji þetta tvennt eiga fátt sameiginlegt. En það er hægt að finna skyldleika, í það minnsta með olíu eða bensíni annars vegar og heitu vatni hins vegar.
Heita vatnið sem kemur úr iðrum fósturjarðarinnar og streymir úr krönum flestra landsmanna er mismunandi heitt eftir landshlutum.
Náttúrugarðurinn undir Eyjafjöllum er stórkostleg og ætíð jafnfróðlegt og skemmtilegt að fara fram með fjallshlíðinni. Perlan Skógafoss er enn á sínum stað og þar er kjörinn staður til að áningar, ágætis tjaldstæði og þjónusta Fossbúans góð.
Sá sem byggir sér hús eða kaupir íbúð í blokk lætur sig í flestum tilfellum litlu varða hvaða efni er notað í hita- og neysluvatnskerfið að ekki sé talað um frárennsliskerfið. Eru ekki öll þessi hné og té eins og eru ekki allar þessar pípur eins?
Sú hefur verið trú manna á undanförnum áratugum að hérlendis mættu ekki sjást lagnir í hýbýlum eða vinnustöðum. Eftir þessari trú hafa hönnuðir farið þegar þeir ákveða lagnaleiðir og eftir þeirra teikningum og hönnun hafa pípulagningamenn unnið, allar lagnir huldar í veggjum og einangrun.
Sumir halda því fram að mannlíf á Vestfjörðum sé all frábrugðið mannlífi annars staðar á landinu eða réttara sagt að Vestfirðingar séu sér á parti.
Nágrannaerjur hafa þekkst frá upphafi Íslandsbyggðar. Allt fram yfir Sturlungaöld kostuðu þær oft mannslíf og þó slíkt hafi verið fátítt á síðari tímum hefur oft komið til pústra milli nágranna.
Þau eru nýbúin að kaupa sér einbýlishús á Flötunum í Garðabæ, í Seljahverfinu í Breiðholti eða í Hvömmunum í Kópavogi. Undanfari kaupanna er langur, mörg hús er búið að skoða, en hvað hefur verið skoðað?
Þegar haldnir eru fræðslufundir úti á landi eru þeir oftar en ekki með þeim formerkjum að hópur sérfræðinga, misjafnlega stór, heldur af stað út á land, messar yfir heimamönnum og heldur síðan heim á leið, hver og einn berjandi sér á brjóst tautandi; asskoti var þetta gott hjá mér.
Lagnasýningin í Perlunni tókst vel og aðsókn var mikil, raunar miklu meiri en búist var við. Þetta sýnir að almenningur er farinn að láta sig meira varða „hvað er inni í veggnum“, allar þessar ósýnilegu lagnir eru ekki eilífar og lagnakerfi þurfa eftirlit og viðhald.
Flestar þjóðir eiga sér langa byggingasögu og langa hefð, fjöldi aldagamalla bygginga prýðir borgir, margir búa í húsum sem eru allt að tvö hundruð ára gömul.
Á lagnasýningunni „Aqua-Therm“ í Vínarborg í apríl sl. var margt að sjá. Á einum básnum sáust kunnuglegir gripir, bláir brunahanar sem sjá má í nánast hverju þéttbýli á Íslandi.
Þýðing hönnunar allra hluta, ekki síst í húsbyggingum, hefur alla tíð þótt mikilvæg þó að ekki fari hjá því að arkitektum finnist þeir stundum afskiptir, þekking þeirra og starfsmenntun sé ekki nýtt sem skyldi.
Það hefur löngum loðað við tæknimenn að vera hver að bogra í sínu horni, þetta á bæði við um iðnaðarmenn og hönnuði. Þetta leiðir til þess að oft eyðir hver og einn alltof miklum tíma í að finna lausn á vandamáli sem margir stéttarbræður hafa farið í gegnum og leyst.
Það er alltaf jafn tilkomumikið að renna með Herjólfi inn með Ystakletti, í þetta sinn á myrku vetrarkvöldi nánast í upphafi jólamánaðar og upplýstur bærinn fyrir stafni. Farkosturinn ekki af verri endanum og óneitanlega hvarflaði hugurinn til fyrri sjóferða milli lands og Eyja fyrir nokkrum áratugum.
Tíminn líður hratt og flestir fá tilfinningu að tíminn líði æ hraðar eftir því sem aldurinn færist yfir. Táníngurinn bíður óþreyjufullur eftir fullorðinsárunum en þegar þeim er náð er skammt í að hver og einn vilji stíga á hemla tímans, ekkert liggur á.
Það gerðist í Hlíðunum nýlega að hitakerfið „hrundi“ og augljóst var að ekki var um annað að ræða en leggja nýtt kerfi.
Í norska tímaritinu „Rörfag“, sem er gefið út af samtökum norskra pípulagningameistara, var sagt frá allsérstæðu námskeiði sem haldið var í bænum Drammen þar í landi.
Á unga aldri eru flestir bjartsýnir og hafa kjark til að takast á við lífið. Við stofnun fjölskyldu er eitt fyrsta og erfiðasta verkefnið að koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Engar takmarkanir eru á því hérlendis hversu heitt vatn má renna úr krönum og blöndunartækjum, við höfum verið svo ánægð með gnægð af heitu vatni úr iðrum jarðar að annað hefur vart komist að.
Stundum er erfitt að sigla á milli skers og báru, það á einnig við þegar við hérlendis erum að taka til okkar nýjungar frá hinum tæknivædda heimi, sama hvaða tækni á í hlut.
Það getur ýmislegt komið fyrir tækin í baðherberginu, handlaugin getur brotnað, sömuleiðis salernisskálin. Ýmsir þungir hlutir geta fallið í baðkerið eða sturtubotninn og brotið glerjunginn, já það getur ýmislegt gerst sem orsakar að ekki verður hjá því komist að skipta um tæki.
Það er oft sagt að við Íslendingar eigum fáar hefðir og talsvert hefur verið gert af því síðari ár að efla þær sem finnast og ætti að vera nærtækt að benda á það að að margir leggjast í át á súrmeti og hákarli á þorranum og nýyrðið „þorramatur“ er orðið samheiti yfir allt sem lagt er á borð við blótin.
Arineldur og kolaofn verða aldrei eldstæði sem fá hrós fyrir góða varmnýtingu, meirihluti varmans rýkur upp um reykháfinn hefur hann kannski hrafninum ef hann hefur vit eða löngun til að nýta sér hann.
Það er ekki víst að brúðkaup sé að baki, meira að segja frekar ótrúlegt, það tíðkast tæplega nú til dags að byrja á því. Áður en að því kemur eru oft liðin nokkur ár í sambúð og eitt, tvö eða jafnvel fleiri börn komin í heiminn í blokkaríbúðinni sem ráðist var í að kaupa í upphafi sambúðar.
Fregnir af hrikalegum brunum í Keflavík hafa verið of margar á síðustu mánuðum eða ári og gífurleg verðmæti hafa fokið þar út í veður og vind.
Það er að sjálfsögðu lang einfaldast, bæði fyrir hönnuðinn og pípulagningamanninn, að allar lagnir í húsið og lagnaleiðir verði „hefðbundnar“ sem þýðir í raun, að það er valið það lagnaefni sem nánast alltaf hefur verið notað undanfarin ár.
Það er með ólíkindum hvað allri tækni hefur fleygt fram á þessari öld sem nú er senn lokið, en henni lýkur að sjálfsögðu þegar árið 2000 er á enda, en við munum nú samt halda upp á aldamótin þegar það ár gengur í garð.
Það er sama hve háþróuð mennveran verður, það mun ætíð verða svo að mannslíkaminn verður að fá fæðu til að sjá sér fyrir orku og efnum til eigin viðhalds og uppbyggingar, það hefur óhjákvæmilega í för með sér að líkaminn verður að losa sig við úrganginn, eftir að vinnsla hefur farið fram, í fljótandi eða föstu formi.
Eitt af einkennum tegundar þeirrar sem nefnist maður er að horfa eða stara miklu meira á það sem fer aflaga en það sem betur fer.
Þótt byggingar á Íslandi séu flestar ungar, ef svo má að orði komast, fer það ekki á milli mála að viðhald og endurnýjun frárennslislagna er að verða mjög brýn.
Hvað kom manninum til að taka sér búsetu nyrst á hnettinum þar sem freri fer aldrei úr jörðu og myrkur grúfir yfir vikum eða jafnvel mánuðum saman? Í árdaga hafði maður og búsetu, nokkuð sem er enn forsenda búsetunnar eins og glöggt má sjá á lífsháttum hérlendis.
Það er aldrei á vísan að róa með það hvenær vorið kemur hérlendis og eftir hlýjan apríl stóðu vonir til að maí yrði ekki síðri og hvað er betra en að eyða nokkrum vordögum á Akureyri?
Það er segin saga að þegar hörmungar eins og stórstyrjöldir herja á mannkynið hefur það í för með sér miklar framfarir í hverskonar tækni, heimsstyrjaldirnar tvær á þessari öld eru vitni um það, einkum sú síðari.
Eitt af því sem við Íslendingar erum ríkir af eru óbyggðir og nú höfum við séð fyrstu alvöru tilraunina til að skipuleggja óbyggðarnar eða hálendið, þar sem reynt er að koma hugmyndum á blað um það hvernig við ætlum að nýta okkur þessi gæði, því gæði eru óbyggðirnar og það á margan hátt.
Fyrir um aldarfjórðungi stóð heimurinn frammi fyrir mikilli ógn; olían hækkaði hrikalega í verði og hin svokallaða olíukreppa skall á.
Þjóðhátíðardagurinn er að baki ásamt tilheyrandi hátíðahöldum sem fóru vel fram um land allt að sögn þeirra sem gerst þekkja og nánast fylgdust með og auðvitað er það lögreglan sem helst er til frásagnar.
Það þótti tíðindum sæta þegar tvö stór landssamtök atvinnurekenda sameinuðust fyrir nokkrum árum. Þetta voru Landssamband iðnaðarmanna og Félag íslenskra iðnrekenda og þá urðu Samtök iðnaðarins til.
Það skiptir alla þjóðfélagsþegna miklu máli hvaða lagnir og hvaða lagnaleiðir eru valdar í hvers konar húsbyggingar. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að tíunda einu sinni enn hve mikill fórnarkostnaður vatnstjónanna á undanförnum árum er.
Mörgum verður fótaskortur á sléttum velli og þarf ekki alltaf hálku til. Tröppur verða þó fleirum að falli, ekki síst að vetrarlagi þegar svellbunki er á hverju tröppunefi.
Sá sem fer til Höskuldar og kaupir sér eina flösku af rauðvíni er ekki að kaupa gler, það skiptir hann minnstu máli. Hann er líklega að kaupa gott rauðvín, það er aðalatriðið.
Menn bregða undir sig betri fætinum um fleiri helgar en verslunarmannahelgina, sumarið er stutt hérlendis og um að gera að reyna að njóta þess meðan fært gefst. Eitt af því sem er snar þáttur í ferðamennsku landans innanlands er að sækja sundstaði og líklega eru fáar þjóðir með jafn gróna hefð fyrir sundi og Íslendingar.
Margir eiga þess kost í dag að dvelja í sumarbústað á fögrum stað, helst með heitum potti og birkihríslum í nánd. Áður fyrr voru það ekki nema mektugir borgarar sem gátu veitt sér slíkan lúxus en á síðari árum hafa fleiri og fleiri félagasamtök komið sér upp bústöðum sem félagsmenn geta fengið í vikutíma eða svo gegn hóflegu gjaldi.
Það er ekki svo langt síðan að allar þakrennur voru gerðar úr galvaniseruðu blikki, þess vegna varð smíði og uppsetning á þakrennum í verkahring blikksmiða og svo er enn þó efnisvalið hafi breyst.
Það hefur vafist fyrir mörgum að skilja hvað er átt við með orðinu „fjöleignarhús“ og stundum er spurt hvort það sé sama og fjölbýlishús. Því má svara játandi en munurinn er sá að fjöleignarhús er víðtækara, það er ekki búið í öllum húsum sem fleiri en einn eiga.
Hugtakið „Austfjarðaþoka“ er alþekkt, gott ef ekki hafa verið samdar um það rómantískar ballöður, en fyrir einstakling á hinu þéttsetna suðvesturhorni fer lítið fyrir þessari margumtöluðu þoku.
Fyrir hvern þann, sem þarf á þjónustu pípulagningamanna, blikksmiða eða hönnuða lagnakerfa að halda, er mikilvægt að sá sem kemur til verksins, hvort sem það er stórt eða smátt, hafi yfir mikilli þekkingu að ráða.
Það eru fjölbreyttir pappírar sem detta inn um bréfalúguna, allir að auglýsa allt, tilboðunum rignir inn. Inn á milli kemur lesmál, sem verulega athygli vekur og eitt slíkt hefti var að koma, Byggiðn, kynningarrit nýstofnaðs Menntafélags byggingariðnaðarins sem er sameignarfélag Samtaka iðnaðarins
Það er ekki svo sjaldan að kvartað er yfir því í fjölmiðlum að ekki sé nokkur friður í heilum hverfum vegna lagnaframkvæmda. Það er verið að endurnýja hitaveitulagnir, kaldavatnslagnir eða þá að frárennsliskerfið í götunum er úr sér gengið.
Mikil umræða hefur verið um galvaniseraðar kaldavatnslagnir á höfuðborgarsvæðinu og eru þeir ófáir sem álíta að þar sé vá fyrir dyrum.
Einu sinni var til verslun í Austurstræti sem hét Herrafataverslun Haraldar Árnasonar. Þarna þótti flott að versla, þjónusta framúrskarandi, en eigi að síður leið verslunin undir lok fyrir nokkrum áratugum, þó enn séu margir ofar moldu sem keyptu sér þar betri fötin.
Þegar ekið er út af hringveginum til vinstri skömmu áður en komið er að Þjórsárbrú erum við komin á Skeið, litla sveit sem afmarkast af Hvítá í vestri þar sem hún liðast um Hestfjall, af Þjórsá í austri og Vörðufell er sem varðhundur í norðri.
Það er sagt að fátt leggist eins á sálarlíf landans og umslög af ákveðinni tegund sem berast inn um bréfalúguna með óhugnanlegri reglusemi, eitt af því fáa sem aldrei bregst í okkar daglega lífi, gluggapósturinn ógurlegi.
Ef einhver velkist í vafa um hvað orðið „töppunarstaður“ þýðir þá er sjálfsagt að láta fylgja þýðingu yfir á venjulegt íslenskt mál.
Á fyrstu dögum miðstöðvarhitunar hérlendis, fyrir tæpri öld, var ekkert verið að hugsa um að stýra hitanum. Í miðstöðvarkatlinum var brennt kolum, við það hitnaði vatnið í kerfinu, heita vatnið steig upp þar sem það var léttara og kaldvatnið seig niður vegna þess að það var þyngra.
Það hefur vakið þó nokkra athygli byggingamanna og raunar fleiri, að gildistöku byggingarreglugerðar hefur verið frestað um hálft ár, eða til 1. júlí 1998. Einhverjar hljóta ástæðurnar að vera.
Það eru mögur ár að baki en vinnufélarnir virðist atvinnulífið vera að glæðast hérlendis og menn telja að bjartari tímar séu framundan. En þá koma afleiðingar mögru áranna í ljós og þar má nefna að í mörgum iðngreinum er vöntun á iðnaðarmönnum.
Félag pípulagningameistara samþykkti nýlega tillögu á fundi nýlega um notkun á galvaniseruðum stálpípum í neysluvatnskerfi. Þá var skorað á byggingayfirvöld á höfuðborgarsvæðinu að stöðva sem fyrst notkun á galvaniseruðum stálpípum, vegna þeirra miklu galla sem komið hafa í ljós á síðustu árum á fyrrnefndum pípum.
Fyrir þó nokkru var svolítið nöldur hér í pistli og stærstu hitaveitur landsins voru gagnrýndar fyrir að verja of litlu fjármagni til rannsókna. Þar var ekki átt við þær nauðsynlegu rannsóknir sem sjálfsagðar eru þegar bora þarf nýjar holur eða nýta ný svæði.
Þrátt fyrir að leiklistarrhefð okkar sé eldri en margur hyggur var það stór stund þegar Þjóðleikhúsið opnaði sína glæstu sali árið 1950.
Vetur er tæplega genginn í garð á Suðurlandi, en í öðrum landshlutum hefur hann heilsað uppá, í það minnsta eru þeir farnir að sjá snjó á Norðurlandi og Akureyringar spenna á sig skíðin og bruna í brekkum.
Landsmenn voru rækilega minntir á hvar þeir búa þegar frostið seig niður í tveggja stafa tölu og í kjölfarið kom austan fárviðri, sem varpaði bílum út af vegum með hörmulegum afleiðingum.
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að fara að tíunda einu sinni enn hve gífurlegir fjármunir fara í ginnungagap vatnstjónaskemmda lagna í húsum og ekki þarf að búast við því að úr þeim dragi á næstu árum.
Í hverju húsi er hitakerfi, neysluvatnskerfi og að sjálfsögðu rafkerfi. Öll eru þessi kerfi nauðsynleg til að hægt sé að lifa og starfa í húsinu.
Það er engin furða þó mörgum verði bylt við á þessum milda vetri þegar skyndilega kemur fimbulfrost og norðangarri. Þessi skyndilegu veðrabrigði leiða í ljós marga vankanta á hitakerfum húsa, vankanta sem enginn tók eftir meðan veðráttan lék við okkur eins og á góðu vori.
Á horni Hverfisgötu og Rauðarárstígs í Reykjavík er stílhreint lítið hús fyrir framan lögreglustöðina. Þetta hús eru síðustu menjar gasstöðvarinnar sem þarna var reist 1910 undir stjórn Þjóðverjans Carl Francke.
Í þeirri byggingareglugerð, sem ætlað er að taki gildi 1. júlí n. k., er þetta ákvæði: „Vatnshitastig við töppunarstað skal ekki vera svo hátt að hætta sé á húðbruna (slysi)“. Á mannamáli þýðir þetta að heitt vatn sem rennur út úr krana eða blöndunartæki má ekki vera heitara en 60 gr. C, jafnvel lægra.
Svona á ekki að þurfa að spyrja, eru ekki til lög um þetta? Jú, vissulega eru þau til og heita „Lög um fjöleignarhús“.
Skriðan féll eftir seinni heimsstyrjöld þegar stríðsgróðinn flæddi um landið, þá var byrjað fyrir alvöru að byggja íbúðarhús úr steinsteypu á Íslandi.
Ef þú ert að huga að húsbyggingu þá skaltu muna að það er aldrei of snemmt að huga að frágangi og búnaði í baðherberginu. Þessi undirbúningur, með öllum þeim vangaveltum sem honum fylgja, þarf að hefjast strax og arkitektinn sest við teikniborðið, já, jafnvel fyrr.
Skammtímaminnið getur verið ótrúlega stutt, þó má ætla að mjög margir muni að sá vetur, sem nú er liðinn, hafi verið mildur og góður flestum nema skíðamönnum, sérdeilis skíðamönnum sunnanlands.
Síðustu viku urðu tvö brunaslys í Reykjavík sem orsökuðust af of heitu vatni, í báðum tilfellum í sturtum, annarsvegar í gistihúsi, hinsvegar á heimili. Eins og ætíð, þegar slík slys verða, fer umræða af stað en eins og oftast áður virðist erfitt að komast að kjarnanum, að þeirri lausn sem skynsamlegust er.
Sú var tíðin að Íslendingar flykktust þúsundum saman á hverja sýningu sem sett var upp í Laugardalshöll, jafnvel voru dæmi um að þriðjungur þjóðarinnar kæmi á sýningu og auðvitað var það og er heimsmet eins og í svo mörgu öðru, ef miðað er við höfðatölu.
Svo virðist sem pólitískur áhugi sé ekki ýkja mikill fyrir kosningarnar á laugardaginn og eru menn ekki á eitt sáttir hvað veldur.
Það er komið vor, enginn vafi. Nú fara þéttbýlisbúar að stússa í garðinum heima, í hesthúsinu eða dýtta að umhverfi sumarhúsa, allt eftir því hvernig aðstæður hvers og eins eru og ríkidæmi.
Það er mikill munur á algjörri íhaldssemi eða ólgandi byltingu og í dag er um það nokkur sátt að best sé að fara bil beggja. Í „Vatnspósti“, afmælisriti Félags pípulagningameistara, sem varð nýlega sjötíu ára, er á þetta drepið og þar stendur:
Fram að þessu höfum við vanist því að tala um málmrör eða plaströr, en nú verður brátt breyting þar á, því að „kynblendingur“ er kominn til sögunnar. Sú spurning hefur oft skotið upp kollinum af hverju ál væri ekki notað í ýmiss konar vatnslagnir, fyrir því eru ýmsar ástæður, einkum tæknilegar, en jafnvel líka heilsufarslegar.
Fátt hefur jafn afgerandi áhrif á lífskjör hvers Íslendings og það stórvirki að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Það er þeim mun furðulegra að umræða um byggingakostnað og hvort mögulegt sé að lækka hann fyrirfinnst alls ekki, að minnsta kosti ekki síðustu árin.
Sá merki fjölmiðill, Morgunblaðið, kom með stórfrétt á forsíðu nýlega og ekki í fyrsta skipti. Að vísu væri þessi frétt alvarlegt mál fyrir ýmsa hérlendis og erlendis ef sá spádómur, sem hún flutti, reyndist raunverulegur kostur, alvarleg fyrir fyrirtæki eins og Íslenskar hitaveitur og alla íslenska pípulagningamenn.
Í Dölunum er náttúrufegurð einstök, vötnin Siljan og Orsa breiða úr sér milli skógi vaxinna hæða og smábæir kúra hvarvetna með sín sterku sænsku einkenni, á öllum bóndabæjum eru timburhúsin með sama lit, rauðbrún, en það er vegna þeirrar hefðar að mála húsin með afgangsefnum úr koparnámunum, meðan þær voru og hétu.
Það er með ólíkindum hvað þessar vambmiklu velmegunarþjóðir í Evrópu og Norður-Ameríku eru komnar langt frá uppruna sínum og mannlegu eðli.
Það er fjári hart að þurfa að búa við slæma lykt í baðherberginu þó húsmóðirin hamist við næstum daglega (í flestum tilfellum er það hún en ekki húsbóndinn og þaðan af síður táningurinn) að þvo allt og pússa, notandi ýmis ilmefni til hjálpar.
Við eigum við margsskonar vandamál að stríða í lagnamálum, sum þeirra er ekki auðvelt að útskýra, önnur eru heimatilbúin og óþörf. Ryðlitur á köldu vatni er vandamál víða um land, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu.
Um aldamótin síðustu voru hýbýli flestra landsmanna ekki upp á marga fiska, til sjávar og sveita var torf og grjót helstu byggingarefnin.
Það var í fréttum nýlega að hreinlæti væri farið að skaða heilsu fólks, einkum barna. Þeir eru ábyggilega margir sem fussa við slíkum fréttum, hreinlæti hljóti alltaf að vera til góðs.
Íslendingum tekst oft, því miður, að drepa hinum bestu málum á dreif með argabrasi eins og sjá má og virðist ætla að verða raunin með hið stórmerka frumvarp á Alþingi um gagnagrunn, þar sem saman yrði safnað á einum stað upplýsingum um heilsufar og móðursýki þjóðarinnar.
Hinn 1. júlí sl. tók ný Byggingareglugerð gildi hér á landi eftir talsvert strangar fæðingarhríðir, en förum ekki nánar út í það. Að sjálfsögðu tekur slík reglugerð til alls þess sem að húsbyggingu lýtur, en ekki er óeðlilegt að hér sé staldrað við þau atriði sem fjalla um lagnir og lagnaefni.
Inn um bréfalúguna hrynja ókjörin öll af bæklingum og pésum, flestum er ætlað það hlutverk að láta okkur falla fyrir freistingum hvers konar, éta pitsur, drekka gos, sprikla í tækjum og láta fitubrækna renna í stríðum straumum.
Þótt víða sé tekist á um fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir og miðlunarlón, jafnvel deilt um ýmislegt sem þegar er komið til framkvæmda, heyrast engar deilur um Nesjavallavirkjun, ekki einu sinni um Kröfluvirkjun.
Ráðstefnan sem Samorka, samtök raf- og vatnsveitna, efndi til í byrjun október tókst vel og flestir fyrirlesarar voru bæði fræðandi og áhugaverðir.
Það var ánægjulegt hve flestir frummælendur á ráðstefnu Samorku „Framtíðarsýn í lagnamálum“ voru málefnalegir og jákvæðir, kannske með einni undantekningu, því miður var síðasta framsagan á ráðstefnunni lítið í samræmi við það sem fyrr hafði komið fram.
Þegar borgarbúinn drífur sig úr borgarstressinu um helgar, hvort sem er að vori, sumri eða hausti, finnst honum fátt fallegra en að sjá stóð á beit eða kindur renna af fjalli, jafnvel heimskulegar kýrnar verða til að bæta lundina og minnka stressið.
Flestir þekkja Metró-Norman í Hallarmúla, þar sem hægt er að fá allt til pípulagna frá morgni til kvölds alla daga vikunnar, það hefur bjargað mörgum, bæði lærðum og leikum, þegar skyndilega flæðir vatn þar sem það á ekki að flæða.
Fram til þessa hefur það verið talinn einn dýrmætasti fjársjóður þessa lands að eiga orku í fallvötnum og varma í iðrum jarðar. Meðan aðrar þjóðir verða að brenna olíu eða kolum til að hita og lýsa hýbýli sín, höfum við „hreina“ orku sem ekki mengar og fleiri og fleiri staðir eru að verða „heitir“ hérlendis
Þrátt fyrir að jarðhiti finnist víðast hvar á landinu eru samt til kortlögð „köld“ svæði, þar er ekki búist við því að finnist nýtanlegur jarðvarmi.
Á ráðstefnu Samorku „Framtíðarsýn í lagnamálum“, sem var vel heppnuð og árangursrík að öllu leyti, var rætt um hvaða lagnaefni hentuðu best í framtíðinni til hita- og neysluvatnslagna.
Einhvers staðar úr grárri forneskju er til saga af ungum efnispilti norður í landi sem lagðist niður á milli þúfna og grét sáran. Ástæðan var sú að hann horfði á eftir hnarreistum jafnöldrum sínum sem héldu suður til að setjast á skólabekk, sjálfur mátti hann sitja eftir vegna fátæktar.
Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur og rúmlega það vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið, sumir segja ef til vill að það skipti ekki máli, þeir séu hvort sem er á förum, það sé ný kynslóð hinna ungu sem sé að erfa ríkið.
Hvað mætir pípulagningamanni þegar hann kemur inn í eldri íbúðir hérlendis til að kanna ástand lagna og tækja? Fyrir það fyrsta er það næstum öruggt að hann kemur ekki til þeirrar athugunar nema eitthvað hafi bilað, eitthvað hafi farið úrskeiðis, einhvers staðar sé leki á lögn eða tæki.
Það er enginn vafi á því að það er nauðsyn, jafnvel lífsnauðsyn, í orðsins fyllstu merkingu, að lækka hita á kranavatni. Til þess eru nokkrar færar leiðir – en hverjar?
Lengst af var það lenska landans að velta hlutunum ekki lengi fyrir sér heldur framkvæma með hraði það sem honum datt í hug. Þetta hafði ótvíræða kosti en einnig ókosti, þetta varð til þess að margar nýjungar komust fyrr í gagnið en ella, en það varð einnig til þess að dottið var í margan pyttinn, sem kostaði sitt.
Orð eru til alls fyrst, stendur einhvers staðar, en einnig er sagt að orð geti verið dýr. Eitt orð getur stundum haft þunga merkingu og höfundur þessara pistla varð heldur betur fyrir barðinu á því í síðasta pistli og verður því að syndga upp á náðina og koma á framfæri leiðréttingu
Í öllu því moldviðri af pappír, sem rignir inn um bréfalúguna eða liggur frammi hvarvetna, fer ekki hjá því að inn á milli finnist þar verðmætar tæknilegar upplýsingar og snjallar hugmyndir.
Eftir að við gerðumst aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu erum við háð margskonar tilskipunum sem frá Brussel koma, það hefur sýnt sig að margt að því hefur heldur betur ýtt við okkur.
Gufuvélin er af flestum rakin til Skotans James Watt og gjarnan nefnt ártalið 1763, en gufuvélin er miklu eldri og margir höfðu komið við sögu hennar á undan Skotanum, fyrsta vélin er jafnvel talin hafa verið gerð í Alexandríu í Egyptalandi 130 árum fyrir Krists burð.
Nú er enginn maður með mönnum nema hann vilji vernda nýjasta fósturbarn Íslands, hálendið eins og það leggur sig.
Þeir er léttir sjóðirnir hjá bæjarfyrirvöldum í Hafnarfirði og við kynningu á fjárhagsáætlun þar í bæ komu fram áætlanir um miklar framkvæmdir og eftir því miklar lántökur, ekki um annað að ræða þegar peningar eru ekki til.
Þó gömlu bárujárnshúsin frá fyrri hluta þessarar aldar hafi haft marga góða kosti þá voru á þeim vankantar nokkrir, svo sem að þau þóttu nokkuð óþétt.
Á hverju ári verða gífurleg eignatjón í eldsvoðum, tjón sem að lokum enda á herðum hvers og eins í þjóðfélaginu. Það virðist seint verða hægt að vinna bug á sinnuleysinu, þeir virðast vera allt of margir sem kæra sig kollótta, en því miður að lokum lenda í þeim hremmingum að horfa upp á eigur...
Það er sama hvort það er í flugvél eða geimstöð, alls staðar er mikið af lögnum. Í bifreiðum, járnbrautarlestum, í skipum, hvort sem þau sigla á yfirborði sjávar eða í undirdjúpunum, eru lagnir úr margvíslegum efnum.
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi eru gömul sannindi og þau eiga svo sannarlega við þá litlu þúfu sem Einar Elíasson hlóð á Selfossi þegar hann hóf að steypa skólprör, sem sannarlega var þörf fyrir í þeim ört vaxandi bæ sem Selfoss var eftir miðja öldina.
Annað hvert ár er haldin mikil sýning og kaupstefna í Frankfurt þar sem framleiðendur og seljendur lagnaefnis, tóla og tækja sýna allt það nýjasta og besta sem finnst á þeim markaði.
Það er hægt að gagna um stóra lagnasýningu, eins og sýninguna í Frankfurt í lok mars, og sjá hana frá mismunandi sjónarhornum. Óneitanlega var það ofarlega í huga á sýningunni að framundan er mikið átak hérlendis við að endurleggja í hús, það er kominn tími á öll hús 40 ára og eldri og mörg þeirra sem yngri eru að árum.
Gömlu steinröralagnirnar, sem liggja í grunnum eldri húsa, munu á næstu árum valda miklum vanda. Þetta er ekki einkennilegt, hrörnun þessara lagna er mjög eðlileg, aldurinn segir til sín.
Hvað er nauðsyn? Hvað eru þarfahlutir? Þetta sækir óneitanlega á hugann þegar gengið er daglangt um sýningarhallir í Frankfurt.
Það er ekki endalaust hægt að liggja yfir bæklingum og minnispunktum frá lagnasýningunni í Frankfurt, en þó eru enn nokkur atriði sem vert er að koma á framfæri og gætu, ef rétt er á málum haldið, orðið til gagns hérlendis.
Orðabók Menningarsjóðs segir ekki mikið um þetta nýyrði í íslenskri tungu, þó að það sé kvenkynsnafnorð og skýring orðsins er aðeins „það að hanna“.
Þegar lagnakerfi eru hönnuð í venjuleg hús er margs að gæta og eitt af því er að velja lagnakerfið. En áður en að því kemur þarf að ákveða annað, sem ekki skiptir minna máli, það þarf að velja lagnaleiðina, ákveða hvar lagnirnar eiga að vera.
Það er fróðleg lesning að fá í hendur lýsingar á íbúðum eða húsum, sem eru í boði hjá fasteignasölum. Þar eru gefnar margar sjálfsagðar og nytsamlegar upplýsingar, stærð og staðsetning, aldur og auðvitað ástand fjármálanna, hve mikið á eigninni hvílir af skuldum.
Hverju húsi, jafnvel á hverju heimili, er skot þangað sem öllu er hent, líka því sem ætti að henda í gámana hjá Sorpu, það eiga flestir sitt „óhreina barn“. Einn er sá staður sem öðrum fremur er valinn til þessa hlutverks og sá er tengiklefinn eða staðurinn þar sem tengigrind hitaveitunnar er
Ákvarðanataka er oft erfið og oft koma menn sér hjá að taka ákvarðanir, benda heldur á einhvern annan og segja sem svo: Hann segir að þetta verði að vera svona.
Varmaskiptar hafa mikið verið til umræðu að undanförnu, ekki síst þegar ræddar hafa verið leiðir til að lækka hita á kranavatni. En hvað er varmaskiptir, er ekki full þörf á því að skýra það nánar?
Það fer ekki á milli mála að bæði lærðir og leikir hafa áhuga á varmaskiptum og vilja gjarnan skilja fyrirbrigðið, einnig hvenær þörf er á notkun þess og ekki síst; hver hefur vald til að fyrirskipa varmaskipta.
Nú er landinn á faraldsfæti með fellihýsin í eftirdragi eða tjaldið á toppnum, sumir lúta ekki að svo frumstæðum lifnaði en hvíla lúin bein í bændagistingu, á eddu- eða lyklahótelum.
Það er talsvert lagt í að hanna alla hluti í nýju húsnæði eða því sem er verið að endurbyggja. Eitt af því eru lagnakerfin, ekki síst hitakerfin, enda finnst flestum liggja í augum uppi að það er mikils virði að eiga kost á góðum hita þegar kólna fer í veðri.
Fyrir nokkru var grein hér í blaðinu þar sem kynntar voru hugmyndir Einars Þorsteins hönnuðar um að nú skuli byggja fyrsta sjálfbæra íbúðarhúsið hérlendis og óneitanlega eru það jákvæð tíðindi.
Það hafa verið skuggaleg tíðindi frá ýmsum löndum Evrópusambandsins að undanförnu. Belgar hafa búið til dýrafóður úr eitri sér til sparnaðar, sama hafa Frakkar gert, en þeir hafa notað ýmiss konar úrgang, frá vatnshreinsistöðvum m.a., í dýrafóður, en þetta getur víst skilað sér áfram með kjúklingum eða svínum
Hverjum þykir sinn fugl fagur sem eðlilegt er og öllum þykir sú vara best sem þeir bjóða. Það fer ekki á milli mála að nokkuð hörð viðbrögð hafa orðið við pistlum um varmaskipta sem birt hafa nýlega, það er eðlilegt, í þeim var tónn sem var nokkuð í andstöðu við þær ákveðnu auglýsingar og kynningar sem komið hafa frá innflytjendum varmaskipta.
Lítill drengur sat á síðkvöldi fyrir langa löngu, horfði á ósandi ljós olíulampans, vitandi að þegar kulnaði í síðustu skánarflögunni í eldavélinni yrði kalt, en sat samt og hlustaði á umræður hinna eldri.
Það er gaman að segja mönnum frá því að Norðurlandakeppni í pípulögnum hafi farið fram í fyrstu viku september í Tromsø í Noregi. Flestir verða sposkir á svip, að öðrum setur óstöðvandi hlátur.
Fyrir hálfri öld var þetta svo einfalt, snittvélin var þarfasti þjónninn, efnið sem unnið var úr hafði í aðalatriðum verið það sama frá síðustu aldamótum, allir vissu að hverju þeir gengu, ekkert var óvænt.
Hérlendis finnst okkur sjálfsagt að inn í hvert hús komi tvö vatnsinntök, annað fyrir kalt vatn, hitt fyrir heitt. En víðast hvar erlendis er þetta óþekkt fyrirbæri, það kemur aðeins ein leiðsla inn í húsið með köldu vatni, síðan klofnar sú lögn í tvær, önnur liggur að öllum köldum krónum en hin að heithitara sem hitar vatnið.
Fleiri og fleiri gera sér grein fyrir því að námi lýkur ekki þó eitthvert lokapróf sé tekið, það á jafnt við í læknisfræði, lögfræði, prentiðn eða pípulögnum svo eitthvað sé nefnt af handahófi, þetta á við um öll þau störf sem mannskepnan tileinkar sér.
Eftir áralangt helsi er gaman að lifa, loksins fær tækniþróun í pípulögnum að njóta sín á Íslandi.
Hreint loft er eitthvað sem við höfum nóg af hér á landi, en ekki er það algilt. Þó hægt sé að teyga íslenskt fjallaloft inn á öræfum er aðra sögu að segja víða í hýbýlum manna, loftræskerfi hafa verið til gagnrýninnar umræðu á undanförnum árum, ekki aðeins hérlendis heldur víða um lönd.
Þegar svara á fyrrnefndri spurningu kemur strax önnur spurning í hugann; hverjir ráða mestu um það hvort baðherbergið breytist og þróast í framtíðinni? Í fyrstu er eðlilegast að svara þeirri spurningu með því að það sé að sjálfsögðu húseigendur og þeir sem eiga að búa við baðherbergið.
Það kann að virðast sérkennilegt að senda út litskreyttan og vandaðan bækling til að vara við vöru sem útgefandinn selur. En þetta er ekkert einsdæmi og ofur eðlilegt.
Það er líklega um áratugur síðan Lagnafélag Íslands tók upp þann sið að verðlauna fyrir lofsverð lagnaverk. Fyrir skömmu voru afhentar viðurkenningar fyrir verk sem lokið var við á árinu 1998 og að þessu sinni voru það lagnir í lyfjaverksmiðjunni Delta í Hafnarfirði sem urðu hlutskarpar og áttu það sannarlega skilið.
Hitakerfi í nýjum húsum á hitaveitusvæðum eru ekki flókin við fyrstu sýn og ef við lítum á slík kerfi í nýlegu fjölbýlishúsi, segjum svona þriggja til fimm ára gömlu, eru helstu einkennin þessi:
Það er rífandi gangur í fasteignasölu, rífandi gangur eins og í flestu í okkar þjóðfélagi. Þetta gerist þrátt fyrir að fasteignaverð hafi verið á hraðri uppleið og sú hækkunarbylgja virðist enn með fullu risi.
Það sem hefur yfirskyggt allt í orkumálum þjóðarinnar á undanförnum og yfirstandandi misserum er það – að vera á móti. Það er ef til vill ekki auðvelt fyrir þann sem kominn er á efri ár og alinn upp við ungmennafélagsandann að skilja þetta inntak nútímans.
Fáar þjóðir hafa verið framsæknari í iðnaði á undanförnum árum en Finnar og ekki hvað síst á sviði hátækni og fjölmiðlunar.
Sem betur fer er mikil og góð þróun í íslenskum byggingariðnaði á mörgum sviðum. Arkitektúr hefur tekið miklum framförum, sérstaklega er ánægjulegt að horfa á skemmtilega þróun í hönnun fjölbýlishúsa, þar er mikill munur á gömlu kössunum ferköntuðu eða því lífi sem komið er í fjölbýlishúsin.
Það eru víst ekki allir ánægðir með að alheimskeppni í iðngreinum beri nafnið Ólympíuleikar, það sé aðeins hin hefðbundna íþróttahátíð, undir yfirstjórn Alþjóða ólympíuhreyfingarinnar, sem hafi rétt til að nota þetta heiti og hugtak.
Í fyrstu skáldverkunum sem sögðu frá mannlífi í veikburða, en þó vaxandi, þéttbýli hérlendis var oft fjallað um smælingja sem áttu dapra ævi við stopula vinnu og lélegan húsakost.
Hálendispeppamaður einn skýrði hróðugur frá því í fjölmiðli að hann ætlaði að spæna landið endilangt á blikktrölli sínu frá Snæfellsnesi til Austfjarða til að mótmæla þeim sem hann valdi nafnið „orkusóðar“.
Íhaldssemi er öllum í blóð borin hvort sem menn vilja viðurkenna það eða ekki, oft eru þeir sem kalla sig róttæka íhaldssamastir af öllum þegar til kastanna kemur.
Stundum er sagt að upphefðin komi að utan, lítið sé að hafa á heimaslóðum. Hvort tveggja er án efa öfgar, en því verður ekki á móti mælt að fyrr á árum voru menn oft æði hallir undir það sem að utan kom.
Eftir harðan og stundum snjóþungan vetur fer ekki á milli mála að margir hyggja á lögn snjóbræðslukerfa við hús sín, jafnvel eru menn gallharðir á því að rífa upp tiltölulega nýlagðar hellur til að koma undir þær snjóbræðslurörum.
Það mætti ætla, eftir umræðum að dæma, að við hérlendis séum að sökkva í loftmengun og að svokölluð gróðurhúsaáhrif séu að verða ógnvekjandi. Ekki alls fyrir löngu mátti lesa bollaleggingar vísindamanna um hvað gæti verið í vændum ef svo og svo mikið af ís á suðurskauti eða Grænlandi bráðnaði á tiltölulega stuttum tíma.
Kalda stríðinu er lokið eða svo er sagt. Afleiðingar þess eru þó enn að koma í ljós og það er ekki einkennilegt að ljósasta dæmið um það sé höfuðborg Þýskalands, Berlín.
Það kemur æði oft fyrir á lagnateikningum að hönnuður setur þá klásúlu á teikningu eða útboðslýsingu „að einungis skuli nota vottað lagnefni“. Hver á að votta hvað?
Húseigendur á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur hafa átt við að glíma þrálátan vanda í hitakerfum sínum sem lýsa sér í því að sjálfvirkir ofnlokar festast eða stíflast og þetta skapaði mörgum vandamál á vetri liðnum, ekki síst í versta frostakaflanum.
Engum blandast hugur um að lög og regla eru nauðsyn í hverju siðuðu samfélagi, en hver lögin eiga að vera og hvernig reglu skal halda uppi eru menn kannski ekki sammála um.
Það er ekki óeðlilegt þegar rætt er um sjálfvirka ofnloka að upp í hugann komi nafnið Danfoss, enda voru Danfosslokarnir lengi allsráðandi á markaði og aðrar tegundir þekktust tæplega.
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin, þess vegna er ekki úr vegi að hafa uppi nokkur varnaðarorð um gasnotkun þó það hafi verið gert fyrir rúmu ári, tæplega er hægt að ætlast til að lesendur muni það svo lengi sem í pistlunum stendur, auk þess sem boðskapurinn fer örugglega framhjá mörgum.
Á fyrri hluta síðustu aldar voru menn farnir svo lítið að bjarga sér til sveita til orkuöflunar, víða voru settar upp heimilarafstöðvar þar sem lækir höfðu þá fallhæð og vatnsmagn að nægði til að knýja túrbínu sem framleiddi rafmagn, alla vega nægilegt til lýsingar.
Kungälv er lítill bær á vesturströnd Svíþjóðar og þar er einn þekktasti lýðháskóli á Norðurlöndum, hann ber nafn bæjarins og margir Íslendingar hafa sótt þann skóla.
Við minnismerkið um Klettafjallaskáldið má sjá vítt og breitt yfir Skagafjörð, yfir grösugan dalinn þar sem vatnsmikil Héraðsvötnin halda áfram sinni stöðugu ferð til sjávar, Hegranesið á sínum stað og úti á firðinum djásnið mikla Drangey ásamt minni spámönnunum Málmey og Þórðarhöfða.
Við kaup á eldra húsnæði er margt að athuga, ekki síst í sambandi við lagnir. Nú erum við Íslendingar að sigla hraðbyri inn á það tímaskeið að stór hluti eldri íbúða, sem eru á markaði, eru orðnar hálfrar aldar gamlar og sumar vel það.
Fortíðarhyggja hefur verið all áberandi í íslensku þjóðlífi á síðustu áratugum og sumir rekja hana til ákveðinnar kynslóðar sem oftast er kennd við ártalið sextíu og átta.
Fjöldi manns er út um allt land að grafa og róta í allt að því örvæntingarfullri leit að minjum frá landnámi, frá búsetu forfeðranna í gegnum aldirnar og hverju því, sem varpað getur ljósi á lífsbaráttu genginna kynslóða.
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þróun gólfhitaferla hérlendis og hægt er að fullyrða að þau eru í sókn. Ekki síst hefur notkun gólfhitakerfa í iðnaðarhúsnæði aukist, en aukningin er einnig í einbýlishúsum.
Öll gæði sem koma fyrirhafnarlaust verða að vana og það er engum hollt til lengdar. Ár eftir ár er hlýtt og notalegt á flestum heimilum hérlendis og hægt að bregða sér í sturtu eða flatmaga í baðkerinu þegar tími er til.
Í ársbyrjun lést í Svíþjóð maður nokkur, Joel Liljendahl að nafni, hann var 87 ára gamall og verkfræðingur að mennt. Þótt ekki sé ætlunin að gera þessa pistla að vettvangi fyrir þjóðaríþrótt Íslendinga, skrif minningargreina, er þó seilst inn á það svið.
Forseti kínverska þingsins og fyrrverandi forsætisráðherra í því landi er kominn og farinn, honum tókst að koma talsverðu róti á þjóðina, einkum þá yngri.
Það er alþekkt að fyrirtækjaheiti verður stundum samheiti yfir ákveðin tæki eða framleiðslu og eitt af þeim fyrirtækjum sem hefur náð þeirri stöðu er danska, en þó alþjóðlega, fyrirtækið Danfoss.
Mörgum brá í brún, ekki síst iðnaðarmönnum, þegar kjarnakona ein auglýsti kvöldnámskeið fyrir hinn almenna borgara og húseiganda í helstu iðngreinum sem húsbyggingar varða.
Eyrarsundsbrúin er mikið mannvirki og ber verkkunnáttu nágrannaþjóðanna, sem brúna byggðu, gott vitni. Fjórtán manna hópur frá Tengi ehf. í Kópavogi fór beint úr Flugleiðavélinni á Kastrup og renndi eftir þessu mikla mannvirki í sænskri smárútu yfir til Malmö og uppeftir Skáni
Hópurinn frá Tengi ehf., sem átti Svíþjóðarferð að baki, var nú kominn til hinnar fornu höfuðborgar konungsríkissins Íslands, Kaupmannahafnar.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur sent öllum, sem málið varðar, bréf um að hans embætti muni krefjast vottunar um lagnaefni frá og með 1. desember n.k. eftir orðanna hljóðan í Byggingarreglugerð frá júlí 1998.
Það eru blómleg viðskipti með eldri fasteignir á þeim svæðum þar sem þenslan er í algleymingi, á suðvesturhorni landsins. Oft er það ungt fólk sem að kaupa sína fyrstu íbúð og hvernig ber það sig að við skoðun áður en kaupin eru gerð?
Nokkrir eldri iðnaðarmenn í virðulegum félagsskap horfðu til baka og rifjuðu upp hve vel metnir borgarar iðnaðarmenn voru í „gamla daga“ og þá er litið svona eina öld aftur í tímann.
Sú var tíðin að allur matur var eldaður á hlóðum, sem er fyrirbrigði sem nútímamaðurinn veit vart hvað er, og mór og skán, einnig nefnt sauðatað, helsta eldsneytið.
Það er leyfilegt að hafa gaskúta innandyra á einkaheimilum, þó ekki sé nokkur vafi á að skynsamlegra væri að hafa þá úti í sérsmíðuðum skáp við einbýlishús og raðhús, en í fjölbýlishúsum eru þeir betur komnir á svölum en inni í eldhússkáp.
Eflaust finnst mörgum að borið sé í bakkafullan lækinn að birta þriðja pistillinn í röð um gas og gastæki. En þetta er ungur og óþroskaður markaður í örum vexti og gastæki eru dauðans alvara ef óvarlega er farið.
Á undanförnum árum hafa orðið fjölmargir hrikalegir eldsvoðar hérlendis þar sem milljarða króna verðmæti hafa orðið að lofti á svipstundu í bókstaflegri merkingu því að við bruna breytist fast efni í loft.
Á fyrstu dögum kaldavatnsveitna hérlendis, á fyrri hluta síðustu aldar, var yfirleitt sá háttur hafður á að dreifikerfi var lagt á fylltan grunn áður en gólfplata var steypt.
Auðvitað er lang einfaldast fyrir hvern og einn að búa í sínum helli eða jarðholu eins og gert var í fyrndinni, en mikið lifandis ósköp hefur það oft verið leiðinlegt og eftir því óþægilegt.
Hvað gerist þegar húseigandi þarf á þjónustu iðnaðarmanns að halda? Eflaust finnst flestum svarið einfalt; húseigandinn biður einhvern úr hópi iðnaðarmanna, sem hann treystir, að taka verkið að sér, hann gerir það, lýkur verkinu, skrifar reikning og húseigandinn borgar.
Íslendingar eru taldir nýjungagjarnir og það eflaust oft með réttu, ekki hvað síst ef horft er á bílaflotann sem býður um strætin og leggur sinn skerf í mengunarskýið, sem svo oft sést á góðviðrisdögum úti á Faxaflóa.
Maðurinn er skrítin skepna var einhvern tíma sagt og það er hann með réttu. Við dáum framfarir, nýja tækni, nýjar græjur og verðum að eiga það nýjasta og besta hvort sem það er bíll, sjónvarp eða, ja, nefnum það bara.
Nútímamaðurinn vill lifa í hreinu umhverfi og hann trúir því að svo sé, grápöddur, járnsmiðir, köngulær og annar slíkur ófögnuður var aðeins til í hlöðureyfum þar sem brennd var sauðaskán og mykjuhaugur var steinsnar frá húskofunum, sem oft voru ekki upp á marga fiska.
Snemma á síðustu öld fundu landsfeður það heillaráð, sem duga skyldi til að venja landann af öllum drykkjuskap. Algjört bann við innflutningi og framleiðslu á áfengi var löglegt.
Það á að kjósa um flugvöll í höfuðborginni, á gamli Bretavöllurinn að vera eða ekki vera? Það er lofið. Nú sest enginn svo við lyklaborð að hann segi ekki sína skoðun á flugvallarmálinu, þrátt fyrir það eru þeir æði margir sem enga skoðun hafa.
Frá því röraöldin hófst hérlendis fyrir einni öld ríkti stöðugt ástand í vali á lagnaefnum í nær sjö áratugi, hvort sem var til hita-, neysluvatns- eða frárennslislagna.
Skylt er skeggið hökunni, eins er það með lagnakerfin og lagnaefnin. Ef eitthvert lagnakerfi er að vinna á þá er eins víst að lagnir úr ákveðnum efnum og af ákveðinni gerð séu í sókn.
Hægt og sígandi erum við hérlendis að eignast fleiri og fleiri eldri hús, hús sem eru frá fyrsta stóra stökkinu í byggingu íbúðarhúsnæðis og eru á aldrinum 40–60 ára gömul.
Ungi lögfræðingurinn hafði keypt þrjátíu ára gamalt raðhús fyrir sig og vaxandi fjölskyldu. Augljóslega þurfti ýmislegt að endurnýja innanhúss, einkanlega í baði og eldhúsi.
Fjölmiðlar bregða gjarnan á leik fyrsta dag aprílmánaðar og gabba lesendur sína, eða í það minnsta, reyna að gabba þá með misjöfnum árangri.
Orsök þessarar spurningar er ekki sá ótrúlegi vetur, ef vetur skyldi kalla, sem nú samkvæmt almanakinu er liðinn. Þrátt fyrir einstaklega mildan vetur munum við áfram tala um hið kalda Ísland, þó meðalhiti hjá okkur þætti all hár víða á norðurhveli jarðar.
Þá er sumardagurinn fyrsti liðinn enn einu sinni og hvort frosthret á eftir að koma eða ei skiptir ekki máli; hugurinn er þegar kominn inn í sumarið, menn eru farnir að huga að görðum og ekki síður að sumarhúsum.
Enn einu sinni er vorið komið, en sjaldan hafa skil milli vetrar og vors verið jafn ógreinileg. Að baki er einhver mildasti vetur í manna minnum, að minnsta kosti hér sunnanlands, skíðamönnum til mikillar armæðu og leiðinda.
Það voru orð í tíma töluð þegar formaður Iðnnemasambands Íslands kom á skjáinn 1. maí og varaði þunglega við því hve illa horfir með verkmenntun á Íslandi í dag.
Fyrir þá sem búa á þéttbýlasta horni landsins er búseta í Grímsey, nyrsta byggða bóli á Íslandi, talsverð ráðgáta. Yfir eyna liggur sjálfur heimskautsbaugurinn en þrátt fyrir það virðist byggð standa föstum fótum í eynni og líklega er nú kominn tími til að heimsækja þennan sérstæðasta stað landsins.
Það er rétt um aldarfjórðungur síðan snjóbræðslubylgjan hófst hérlendis ef svo má að orði komast. Vissulega höfðu verið lögð nokkur kerfi áður, en það voru lítil kerfi, má þar nefna hitalögn í tröppur við Austurbæjarskólann, í gangstíginn upp að Menntaskólanum í Reykjavík og í tröppur undir Miklubraut við Lönguhlíð.
Nokkur áhugi virðist vera fyrir því að kynnast leyndardómum varmadælunnar en um hana var fjallað nýlega sem fýsilegan kost fyrir Grímseyinga og eflaust fleiri. Sjálfsagt er að reyna að skýra fyrirbærið þótt alltaf sé hætta á við slíkar útskýringar að detta í pytt torreðinna tæknilýsinga, en reynum okkar besta.
Það er yfirgengilegt hvað gífurleg verðmæti fá að fuðra upp í eldi hérlendis ár eftir ár. Nýlega hafa orðið tveir stórbrunar, sá fyrri í Hafnarfirði þar sem matvælafyrirtæki gjöreyðilagðist, sá síðari á Akureyri, einnig í matvælafyrirtæki, og þá voru Akureyringar heppnir með vindáttina
Danir tala gjarnan um „stóru gárungana,“ þá sem í dag eru um sextugt, eða fæddir þegar Danmörk var hersetin af sveitum Hitlers. Eflaust hafa menn gert miklar rannsóknir á því hvers vegna danskar konur fæddu fleiri börn á þessum erfiðu árum en ella
Þá er Norræna meistarakeppnin í pípulögnum að baki. Í Bella Center í Kaupmannahöfn unnu fimm norrænir keppendur hörðum höndum í þrjá daga og einn af þeim var Íslendingurinn Vigfús Baldvin Heimisson.
Gufuvélin olli byltingu á sinni tíð og oftast kemur nafn skoska tækjasmiðsins James Watt upp í hugann sem mannsins sem fann upp gufuvélina. Þetta er þó mikil einföldun, miklu frekar má segja að honum hafi tekist að gera gufuvélina þannig úr garði að hún varð svo notadrjúg upp frá því.
Það er komið á milli mála, það var ólykt á fyrstu hæðinni. Konan ýtti stöðugt á bónda sinn að gera eitthvað í málinu en hann var þungur í taumi og gaf lítið út á kvakið í konu sinni, líklega væri ruslafatan ekki tæmd nógu oft, fiskhausar og fiskbein færu fljótlega að gefa frá sér slæma lykt.
Gamlar kempur úr bandaríska hernum eiga sín samtök sem nefnast American Legion, þau hafa oft haft umtalsverð áhrif á stjórnmál þar í landi.
Skipulegt eftirlit með lagnakerfum húsa er nánast óþekkt hérlendis og það er ekki svo einkennilegt. Ástæðan er fyrst og fremst sú að bygging varanlegs húsnæðis hófst ekki í stórum stíl hér á landi fyrr en um miðja síðustu öld, þess vegna stöndum við fyrst nú frammi fyrir þeirri staðreynd að hlutfall húsa, sem eru 40-50 ára, er orðið talsvert hátt.
Gamlar minjar, hvort sem eru amboð, hús, hvalbein, vélar eða hvað sem er, hafa vaxandi gildi í nútíma samfélagi.
Fyrr á tímum var kuldaboli í hvers manns gætt vetrarlangt, marga lagði sá boli að velli, einkum þá sem ekki voru heilir heilsu eða aldnir að árum. En nú er þetta breytt sem betur fer, kuldi er ekki vandamál hérlendis, svo er fyrir að þakka bættum efnahag, betri vistarverum og síðast en ekki síst; jarðhitanum.
Eftir að þessi þjóð losnaði við þá leiðu tvíbura, dragsúg og gólfkulda, er mikið vatn runnið til sjávar. Nánast allir þjóðfélagsþegnar búa við hlý og að ætla má heilnæm húsakynni, þarf þá nokkuð að ræða það meira?
Það eru ekki peningar í öllum bönkum, í sumum geta verið mikilvægar og verðmætar upplýsingar. Gagnagrunnurinn frægi er nokkurs konar banki þar sem upplýsingar um okkar eigin skrokk eru aðgengilegar, vísindamönnum og ekki síður afkomendum okkar til mikils gagns.
Frá örófi alda hefur mönnum gengið erfiðlega að lynda við náunga sinn, hvað sem líður kenningunni um náungakærleika.
Almenn þekking á sögu liðinna kynslóða er ótrúlega léleg hjá okkur mannkyninu, svo lítil að hættulegt má kallast. Þessvegna gengur mannkyninu svo illa að læra af reynslunni, sömu mistökin eru gerð aftur og aftur.
Pottsteyptir emaleraðir eldhúsvaskar munu tæplega vera í notkun í dag, en fyrir 50–70 árum þóttu þeir mikið þarfaþing. Þá voru ekki eldhúsvaskar í hverju húsi, fram að því var vaskafatið eitt notadrjúgsta heimilisgagnið og úr því var skvett út fyrir dyrnar að lokinni notkun.
Þeir Jón og Gvendur voru bændur í Flóa eða Jökuldal, en þeir geta allt eins verið búandi hvor á sinni hæðinni í Hlíðunum eða í blokk í Salahverfi Kópavogs. Eitt er víst að hvorugir þeir bjuggu eða búa voru þeir eða eru nágrannar.
Það er sannarlega fróðlegt að fylgjast með því hvernig okkar ylhýra, ástkæra mál, íslenskan, bróast í huga og munni. Það er fleira en erlend áhrif sem þrengja sér inn í málið, erlend áhrif hafa verið miklu meiri á undanförnum öldum en við gerum okkur grein fyrir og þurfa alls ekki að vera óæskileg að öllu leyti.
Þó nokkuð margir, bæði hérlendis og erlendis, eru tilbúnir til að borga nokkuð meira fyrir lífrænt ræktað matvæli og þá einkum grænmeti. Ekki er víst að allir skilji hvað átt er við með þessu hugtaki, lífrænt ræktað matvæli, ekki einu sinni þeir sem trúa á að þetta sé betra fyrir heilsuna...
Það er til siðs á hátíðlegum stundum að mæra allt sem landið gefur; náttúrufegurð, heilnæmt loft, miðnætursól og oft fylgir með fullyrðing um heimsins tærasta og besta drykkjarvatn.
Fyrir nokkru árum eða svo fóru útsmognir aulabárðar um landið og seldu fólki glundur á flöskum sem þeir nefndu Kínalífselixír og var hvorki meira né minna en allra meina bót, að aulabárðanna sögn.
Löngum var ég læknir minn/lögfræðingur, prestur/smiður, kóngur, kennarinn/kerra, plógur, hestur. Vonandi er ekki langt frá því að þannig sé þetta gamla vísukorn sem lýsir svo ágætlega íslensku þjóðfélagi í gegnum aldirnar allt frá landnámi fram að fullveldi fyrir nær hundrað árum.
Árið 1867 stofnuðu reykvískir iðnaðarmenn félag sem hlaut nafnið Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík. Þetta félag á merkan feril að baki, en ekki er síður athyglisvert að það er enn lifandi og við góða heilsu, ártalið að framan er ekki prentvilla, félagið er orðið 134 ára gamalt og því eitt af elstu félögum landsins.
Það hvarflar ekki að okkur hérlendis að loka fyrir allan hita í híbýlum á þeim tíma sem sól er hæst á lofti, enda er hiti tæpast svo mikill að hægt sé að búa við það.
Lagnafélag Íslands veitti skömmu fyrir jól viðurkenningar sínar vegna ársins 2000. Viðurkenning fyrir heildarverk var veitt Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, viðurkenning fyrir sérstakt handverk var veitt Dimmuhvarfi 2 í Kópavogi og viðurkenningar fyrir farsæl störf voru veittar þeim Guðmundi Halldórssyni og Kristni Auðunssyni.
Stundum kemur manni spánskt fyrir sjónir þegar auglýstar eru viðamiklar ráðstefnur með heiti á helstu heimstungunni, ensku, ráðstefnur sem haldnar eru á Íslandi af íslenskum aðilum.
Um miðja síðustu öld var ömurlegt um að litast í íslensku þjóðlífi. Erlendur gjaldeyrir nánast ekki til, vöruskortur og skömmtun, atvinnuleysi.
Fyrir það fyrsta; ekki er víst að allir séu með það á hreinu hvað varmaskiptir er, til þess er tæplega hægt að ætlast. Varmaskiptir er tæki sem notað er til að færa varma úr einum vökva yfir í annan án þess að bein blöndun verði.
Það vill brenna við, sérstaklega í eldri húsum, að stöðugt er slæm lykt á vissum stöðum, sumir umbera það en aðrir nota alls kyns ilmefni, sem ekki er nokkur skortur á í okkar framleiðsluglaða heimi, til að halda þessu í skefjum.
Ekki er víst að allir viti hvað álplaströr eru, það er eðlilegt, þetta er yngsta barnið í rörafjölskyldunni. Álplaströrin eru í raun sambland af plast- og málmröri og sameinar kosti þessara tveggja efna.
Sagt er að lífið sé ein endalaus hringrás, allt sem gerist eigi eftir að koma aftur. Nokkuð kann að vera til í því, aldrei lærir mannskepnan af óförum sínum, styrjaldir eru háðar, þeim lýkur og allir eru sammála um að aldrei framar skuli bræður berjast.
Svona í framhaldi af síðasta pistli er ekki úr vegi að ræða nokkuð nánar hvað ræður vali fólks á tækjum í baðherbergi. Víst er að enginn getur sagt öðrum hvað hann á að velja en stundum kemur það spánskt fyrir sjónir upp á viðkastið hvað inn í baðherbergið fer.
Ein af stærstu tæknilegu uppfinningum veraldar lætur ekki mikið yfir sér, svo sjálfsögð er hún í dag. Skrúfgangur er til margra hluta nytsamlegur, hann er á boltum og skrúfum, pípulagningamenn þekkja notkunargildi skrúfgangsins, þeir hafa staðið við snittvélar...
Það voru mikil viðbrigði að koma úr kuldanum á gamla hólmanum og í vorið á Ítalíu, þó lítill tími gæfist til að njóta þess. Þekktasta kennileiti stórborgarinnar Mílanó, sem er í norðanverðum Pódalnum, er frægasta ópera heims, Scala.
Stórborginni Mílanó er umferðin mikil, þung og hávaðasöm, ekki er hikað við að nota flautuna þó að ekki sé sjáanlegt að það flýti á nokkurn hátt fyrir, eykur aðeins stressið.
Það er engin leið að komast yfir „Mostra Convegno Expocomfort“ lagnasýninguna miklu í Mílanó á tveimur dögum, þótt reynt sé að nýta til hins ýtrasta tímann frá 9 til 19 báða dagana. Það gerir svo sem ekki mikið til, eftir sýningarskránni er hægt að velja og hafna.
Í gegnum aldir bjuggu Íslendingar í torfbæjum, íveruhús byggð úr varanlegu efni voru fá. Hins vegar voru þau fáu steinhús, sem hér voru byggð, svo vönduð að þau hafa staðið um aldir og má þar nefna Viðeyjarstofu og Nes við Seltjörn, auk nokkurra kirkna svo sem á Þingeyrum, í Innri-Njarðvík og á Staðnesi.
Við fellum í margar slæmar gryfjur í lagnamálum á síðari hluta liðinnar aldar. Verstu gryfjurnar voru lagnir í gólfraufar þar sem stálrör tærðust oft á fáum árum og allar eirröralagnirnar á landsvæðum þar sem vatn viðkomandi staðar var eitur fyrir það efni.
Í fjölda ára höfum við hérlendis notað gas í útilegum og ferðalögum, þar áður voru það prímusar og gasluktir sem brenndu steinolíu, en gasið er ótvírætt hreinlegra og þægilegra meðferðar.
Er það virkilega svo að það sé þjóðum fjötur um fót að eiga ríkuleg verðmæti í jörðu, svo sem málma, þó gull sé eða silfur? Þetta kemur upp í hugann þegar ekið er eftir stórvirki Dana, Stórabeltisbrúnni.
Hver þekkir þýsku bræðurna Hansa og Frikka? Ólíklegt að nokkur komi þeim fyrir sig enda mögulegt að fjölmargir bræður finnist í því stóra ríki, Þýskalandi, með þessum nöfnum.
Það er óumdeilt að einn okkar dýrmætasti fjársjóður hér á landi er jarðhitinn. Þeir sem eldri eru muna þá tíma þegar hýbýli voru hituð upp með því að brenna kolum, koksi, olíu, mó eða kindaskán.
Fyrir um þrjátíu árum hófst merkileg þróun í lagnamálum á Íslandi og þar með byrjaði ný og næstum áður óþekkt nýting á jarðvarma í snjóbræðslukerfi. Það er næstum hægt að segja að þetta hafi ekki verið þróun, á þessum árum varð bylting, snjóbræðslukerfi urðu á örfáum árum sjálfsagður við hvert hús á jarðvarmasvæðum.
Áður fyrr gengu púkar ljósum logum í öllum prentsmiðjum, illgjarnir skrattar sem kallaðir voru prentvillupúkar. Þessir skrattakollar eiga ekki hægt um vik og áður, tölvutæknin ætti að gera þeim erfitt fyrir.
Nútímamaðurinn á sífellt erfiðara með að viðurkenna að hann er líkamlega byggður eins og aðrar lifandi verur. Að hann þurfi mat sér til viðurværis er sjálfsagt mál og út er gefinn fjöldi bóka og tímarita sem fjalla um mat og matargerð.
Loftræsikerfi hafa verið æði umdeild, ekki aðeins hérlendis heldur virðist svo vera víða um lönd. Stór hluti af þeim vandamálum sem fylgja loftræsikerfum er að oft vantar á þau smiðshöggið.
Það munu vera rúmir tveir áratugir síðan svissneska fyrirtækið JRG Gunzenhauser þróaði nýja hugmynd að lagnakerfi fyrir hita- og neysluvatnskerfi.
Fyrir einni öld var tæplega nokkuð til sem hét verkalýðsbarátta og þaðan af síður verkalýðsfélög hér á okkar kalda landi.
Hún var óneitanlega athyglisverð auglýsingin frá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Orkuveitu Reykjavíkur, sem birtist í auglýsingakálfi Morgunblaðsins sl. sunnudag.
Íslensk þjóðarsál býr yfir ýmsum eiginleikum, en ekki síður margs konar áráttum, sem kannski væri betra að vera laus við. Í síðasta pistli var fullyrt að ein versta árátta okkar væri forsjárhyggjan; að hafa vit fyrir náunganum hefur verið atvinna margra ævilangt, þeim sjálfum og öðrum til skaða og leiðinda.
Ungur drengur leit upp til frænda síns umfram aðra, taldi hann vera heimsins mesta speking og trúði hverju orði sem af vörum hans hraut. Milli þeirra kom þó að því að þetta ofurálit varð fyrir miklum hnekki.
Hann sat ábúðarmikill, drakk kaffið með bersýnilegri velþóknun, ekki fyrsti bollinn í dag og örugglega ekki sá síðasti. Að baki var langur starfsferill í byggingabransanum og hvergi komið að tómum kofunum þegar rætt var um byggingar, hvort sem það var í hans fagi, trésmíðinni, eða öllum hinum.
Víða um lönd er það stöðug barátta að spara á öllum sviðum, nokkuð sem tæplega verður talið til þjóðareinkenna Íslendinga síðustu áratugina. Á norðlægari breiddargráðum, annars staðar en hérlendis, er það mikið keppikefli að spara orku á öllum sviðum, ekki síst til upphitunar.
Almennur skilningur á því að margskonar efni sem unnið er úr og unnið með, geti verið skaðleg hefur sem betur fer aukist á seinustu árum. Þessi skilningur var mjög takmarkaður fyrir nokkrum áratugum og það skilningsleysi, eða öllu heldur þekkingarskortur, tók sinn toll.
Í þessum pistlum hafa oft verið höfð uppi stór orð um forræðishyggjuna sem ríkt hefur í lagnamálum, þar sem fjölmargir embættismenn og fræðingar hafa tekið sér vald, sem þeir ekki hafa, og tekist að koma í veg fyrir notkun úrvals lagnaefna árum saman.
Það er víðar en á Íslandi sem öflug náttúruverndarsamtök eru starfandi, slík samtök eru einnig í Svíþjóð. Eitt af því sem þau hafa barist fyrir árum saman er að Svíar loki kjarnorkuverum sínum, en þau sjá fyrir stórum hluta af þeirri orku sem íbúar og atvinnulíf Svíþjóðar þarfnast.
Nýlega mættu menn til samkomu til að fagna ungum mönnum sem voru að taka við sveinsbréfum í pípulögnum, eftir að hafa þreytt sveinspróf með tilheyrandi kvíða, stressi og vel útilátnum svita.
Þetta sumar urðu hatrammar deilur á Íslandi og þeim lauk með tvísýnum kosningum. Þetta sumar kepptu þrír þjóðkunnir menn um embætti þjóðhöfðingjans, um forsetaembættið.
Læknir einn sagði að til væru tvær tegundir af fólki, vissulega nokkuð gróft flokkað. Í öðrum flokknum eru þeir sem ætíð eru hjá læknum kvartandi um hina og þessa krankleika, stundum sannanlegir en oft ekki þá ímyndaðir.
Of snemmt er að fullyrða að „þrjátíu ára stríðinu“ sé lokið en nú hafa andstæðingar plastlagna beðið sinn stærsta ósigur hérlendis og var sannarlega tími til kominn.
Það er nokkuð óumdeilt að iðnnám hefur verið hornreka í íslensku menntakerfi síðustu áratugi eða allan seinni hluta síðustu aldar, þeirrar 20. í okkar tímatali.
Það eru ekki allir svo heppnir sem Íslendingar að fá heitt vatn upp úr jörðinni, bæði til upphitunar og hreinlætis. Aðrir verða að láta sér nægja kalt vatn, sem síðan verður að hita.
Flestir vita að Reykjavík er ekki fyrsta höfuðborg Íslands, um aldir var Kaupmannahöfn aðsetur æðstu yfirstjórnar og þjóðhöfðingja, danska konungsins.
Stórfrétt vikunnar er eflaust reykurinn sem stóð upp úr turni Borgarspítalans í Fossvogi, sem nú á að vísu að nefna Landspítala á fyrrnefndum stað. Ýmislegt vakti athygli gamalreynds lagnamanns við stórfrétt þessa.
Það eru enn að gerast stórmerk tíðindi í lagnaheimi. Flestir héldu að það væri liðin tíð, plastbyltingin fyrir þrjátíu árum væri gengin yfir og ró á vettvangi. En það eru að gerast stórmerk tíðindi, það fékkst staðfest í ferð lagnamanna til Þýskalands nýlega.
Árið 1999 var haldin fyrsta Norræna meistarakeppnin í pípulögnum í Tromsö í Norður-Noregi. Fjórir keppendur óttu þar kappi, einn frá hverju Norðurlandanna, en einn vantaði, enginn var Íslendingurinn.
Enn einu sinni er komið nýtt ár og fyrstu dagana eru allir uppteknir af að venja sig við að skrifa rétt ártal, þeir sem á annað borð þurfa eða vilja skrifa eitthvað.
Skyldi það þykja tíðindi á Íslandi þó út sé komin skýrsla, þær eru víst ekki svo fáar sem samdar eru, settar á þrykk og í geymslu, síðan ekki söguna meir.
Ofnhitakerfi eru langalgengustu hitakerfin hérlendis og svo hefur verið frá því að við fórum að leggja hitakerfi, sem við nefndum lengst af miðstöðvarkerfi og hættum að nota kolaofna.
Prætubókarlestur hefur löngum verið yndi og skemmtan Íslendinga, tóku þeir hana upp af fullum krafti eftir Sturlungaöld þegar forfeður okkar hættu að vega hver annan með vopnum vegna heppilegs dugleysis og vopnaskorts, frekar en að skynsemin hefði náð yfirhöndinni.
Latínuskólar fyrr á öldum höfðu mjög takmarkaðan tilgang, það hafði einnig íslenski Latínuskólinn. Það var ekki ætlunin að menn legðust í nám og skólabækur sí-svona af því þá langaði til þess.
Loksins kom hann, þó er vart hægt að segja að beðið hafi verið eftir honum með eftirvæntingu, eða hvað? Íslenski veturinn er mættur í öllu sínu veldi og örugglega er það nokkuð stór hópur manna sem hefur fagnað honum af einlægni.
Þegar traktorar héldu innreið sína í sveitir landsins fyrir rúmri hálfri öld, urðu þeir Blesi, Stjarni og Sokki atvinnulausir. Eftir að farmallar og jónar dýrir tóku við verkum þeirra og brenndu bensíni af ákafa, fengu þessir gömlu vagnjálkar náðuga daga í haganum, bitu sitt gras í rólegheitum
Neyðarútgangar voru læstir, neyðarútgangar voru negldir aftur, eldfim kvoða var á lofti og veggjum svo allt fauknaði upp á svipstundu, engin eldvarnartæki á staðnum.
Á hverju heimili koma upp vandamál, sum eru þó nokkuð stór og erfið viðfangs, önnur lítil og eru þá oft látin mæta afgangi í erli dagsins. Hvaða máli skiptir þó að eldhúskraninn leki örlítið, bara herða svolítið meira.
Lægðirnar hafa verið gestir okkar á fyrstu mánuðum ársins og er ekki í frásögur færandi, þessi gestagangur er svolítið þreytandi, því er ekki að neita.
Í gegnum aldir hefur maðurinn notað margs konar hitatæki og hitakerfi til að halda hita í hýbýlum sínum og kroppi, það er að segja þeir sem á slíku þurfa að halda. Á okkar norðlægu breiddargráðum er þörfin óumdeilanleg og fyrr á öldum var kuldinn, ásamt hungrinu, versti óvinurinn.
Sitjandi í þægindum og varma frá orkuverum jarðhitans og í stafabirtu frá rafljósum frá orkuverum fallvatna, finnst okkur flestum að þetta sé svo sjálfsagður hlutur að við tökum ekki eftir honum fyrr en hann hverfur, heita vatnið hættir að renna og það slokknar á perunni.
Það fer ekki mikið fyrir litla manninum í hinum stórbrotnu áætlunum um virkjanir og raforkuframleiðslu. En þeir litlu eru þó víða að bauka í sínum hornum, gæti verið í einhverjum botni einhvers fjarðar langt frá mannabyggðum þar sem þeir hafa komið sér upp litlu sumarhúsi.
Sú var tíðin að vindmyllur á sveitabæjum voru talsvert algengar hérlendis, aðallega upp úr miðri síðustu öld. Flestar voru þær á Suðurlandi í Árnes- og Rangárvallasýslum þar sem flatlendið var mest, engir bæjarlækir til að virkja.
Fyrir nokkrum árum auglýsti einn gamalreyndur framleiðandi plaströra framleiðslu sína sem í sjálfu sér er ekki í frásögur færandi. Hins vegar gaf umrædd auglýsing ákaflega villandi skilaboð til þeirra sem keyptu og notuðu plaströrin því aðalinntak hennar var að „lögn plaströranna er barnaleikur“.
Vatnið sem rennur að óþörfu um hitakerfi landsmanna nemur mörgum þúsundum tonna og fyrir það eru greiddar milljónir króna, peningar sem er hent út um gluggann. Stórt er nú upp í sig tekið, en þetta er eigi að síður staðreynd.
Ekkert hitakerfi er í jafnmikilli sókn og gólfhiti. Þetta á einkum við um hin þróaðri lönd Evrópu og þau lönd þar sem íbúarnir hafa þörf fyrir góðan, jafnan og öruggan hitagjafa, sem ekki aðeins heldur á þeim hita heldur veitir þeim þægindi og vellíðan.
Löngum var það talið einkenni íslensks samfélags að hver og einn fékk lóð og byggði sitt hús. Það tók tvö ár, eða fimm ár, en hvað um það.
Það er komið sumar og sól. Þess vegna liggur í augum uppi að það er hægt að spara heita vatnið.
Hver þekkir ekki sögurnar um framkvæmdir ríkis og sveitarfélaga þar sem allt er framkvæmt eins og vitið sé ekki reitt í þverpokum. Auðvitað voru þessar sögur skrumskældur veruleiki, en það var kannski svolítill fótur fyrir þeim, annars hefðu þær ekki orðið til.
Langt inni í fortíðinni, já fyrir hálfri öld, stóð sautján ára piltungur fyrir framan örlítið yngri draumadísina og sagði henni þau gleðitíðindi að hann væri að fara í nám.
Ekkert hitakerfi hefur náð jafn mikilli útbreiðslu og ofnakerfið, eða miðstöðvarhitun eins og hún var tengslum kölluð hérlendis.
Það kom frétt í hinu ágæta blaði, Morgunblaðinu, fyrir stuttu þar sem sagt var að nú ætti að fara að innleiða staðla um gæði innilofts, auðvitað á vegum Evrópusambandsins. En hvernig á að mæla gæði lofts, er það hægt?
Það mun seint takast að samræma þau sjónarmið að ofninn undir glugganum skuli vera eins óþvingaður og mögulegt er til að hann geti skilað varmanum út í umhverfi sitt og hinsvegar tilvera sólbekksins eiflífa sem hindrar hitann í að komast sína leið.
Það er nauðsynlegt að taka stór skref í menntun lagnamanna á Íslandi. Komið hefur fram að þörfin fyrir menntun á verk- og tæknisviði fer vaxandi hér á landi.
Heimilið er kastali fjölskyldunnar, sagði einhver og vissulega með réttu, allavega á norðlægum breiddargráðum. Því nær sem dregur miðbaug er hægt að komast af með einfaldari hýbýli, en hér á norðurhjaranum er ekki að undra að lagt sé mikið upp úr húsakosti, góðum húsakosti með hlýju og þægindum.
Stétt sótara hefur aldrei verið til hér á landi svo ekki er víst að öllum sé ljóst um hverja er verið að fjalla né hvert er verksvið þeirra.
Þá hefur sá austurríski Arnold Schwarzenegger ákveðið að hella sér í pólitíkina og bjóða sig fram til embættis ríkisstjóra í því fjölmenna og lítskrúðuga ríki, Kaliforníu.
Segja má að fyrsti nafngreindi pottverjinn á Íslandi hafi verið Snorri Sturluson sem sat í Reykholti, skrifaði bækur, tók þátt í pólitík sinnar aldar og galt fyrir með lífinu.
Sú var tíðin að menn einfaldlega opnuðu gluggann til að fá hreint loft inn að sínu vinnuborði, hvort sem það var skrifborð, hefðilbekkur, steðji eða eitthvað annað sem nauðsynlegt var starfinu. Í þá daga var allt svo einfalt, eða það héldum við í dag.
Það er víst að bera í bakkafullan lækinn að fara að mæra það enn einu sinni hve heppnir við erum Íslendingar, að vera búandi í svo ungu landi að enn ólgar eimyrja undir fótum, eimyrja sem stundum minnir óþyrmilega á sig í spúandi eldgosi.
Í öngum hefur það verið svo að handverk pípulagningamanna hafa ekki verið augljós og áberandi. Varla var búið að leggja kerfin þegar vaskir múrarar komu á vettvang með pinda handlangara á eftir sér og kafferuðu allar pípur.
Haustlægðirnar hellast yfir, viðbrigðin eru firnamikil. Heitasta sumar í manna minnum er að baki, en þar með er ekki sagt að allt góða veðrið sé horfið, haustin eru oft ágætur tími.
Það væri að æra óstöðugan að fara enn einu sinni að taka upp þann gamla þráð að ræða um túr og retúr, eða hvor sé betra, túrloki eða retúrloki, til að stýra hita á ofnakerfi. Það verður að segjast eins og er og það verður að viðurkennast að túrlokinn er að fara með sigur af hólmi, hann er að öðlast þá viðurkenningu
Á miðju liðnu sumri gerðist það í bæ einum í Svíþjóð að eldur varð laus í stofnun sem hýst óskæfhæfa brotamenn, það var reyndar einn af vistmönnunum sem kveikti eldinn um miðja nótt.
Gleðibankinn var fyrsta framlag Íslendinga til sönglagakeppni sjónvarpsstöðva og þar var sungið um gulu miðana. Svo hratt líður tíminn að unga fólkið í dag man tæplega um hvaða gula miða þar var sungið.
Hver hefur ekki mátt þola slíkt í nokkra daga, vikur eða þaðan af lengri tíma. Það tekur á taugarnar að heyra þetta reglubundna dip, dip þegar dropinn dettur í stálvaskinn í eldhúsinu.
Skyndileg óhöpp, sem ekki gera boð á undan sér, eru ákaflega óþægileg upplifun, þó misjafnlega slæm. Hugsum okkur að Jón og Gunna sitji sæl og södd í stofunni heima, það er laugardagskvöld, Gísli Marteinn líður af skjánum og Spaugstofumenn ryðjast inn.
Um þetta hefur verið spurt á mörgum húsfundum, þessa spurningu fá pípulagningamenn og auðvitað veitukerfin. Því ekki að mæla heita vatnið, sem hver íbúi notar eða réttara sagt notar á í hverri íbúð.
Nokkuð lengi hefur verið sátt um það að skipta kostnaði við kaup á heitu vatni í fjöleignarhúsum þannig, hvort sem þau hús eru íbúðar- eða atvinnuhús, að hver og einn greiði eftir stærð sinnar eignar.
Ung og glæsileg norsk kona, atferlisfræðingur að mennt, tók sér fyrir hendur að kanna ákveðið atferli mannskepnunnar í gegnum tíðina. Ekki lét hún þar við sitja heldur setti hún upp sýningu ýmissa gripa, sem sannarlega vakti athygli þar í landi.
Ekki er víst að allir viðurkenni að pípulögn eigi nokkuð skylt við fagurfræðilegan gjörning. Fram til þessa hafa pípulagnir í byggingum verið rækilega faldar í veggjum og einangrun, þó að þar sé að verða á mikil breyting.
Þeir eru ótrúlega víða. Sama hvort þú kemur inn í Bónus eða Nóatún, bílageymsluna undir blokkinni, á bílaverkstæðið til að láta lappa upp á bílinn, alls staðar eru þeir.
Það er ekkert grín að koma sér upp heimili í dag burt séð frá því hvort til eru peningar eða ekki. Það virðist ekki vandinn að verða sér úti um fjármuni, bankarnir hreinlega auglýsa lán, auðvitað á grunsamlega líkum vöxtum, ansi háum vöxtum.
Hvað dettur flestum í hug þegar minnst er á tísku? Líklega margskonar klæðnaður, ýmiss konar spjarir sem bera utan á renglulegum stelpugopum, sem verða að líta út eins og þær hafi ekki fengið ætan bita árum saman, leggjalangar og beinarar, andlitin eins og á vofum og augun stjörf.
Hver einasti maður á jarðríki hefur fundið fyrir þeim, sumum finnst þeir fá of mikið, öðrum of lítið og þar á meðal erum við hér á þessari norðlægu eyju. Þetta er öflugasta geislahitun sem til er, svo voldug að allt annað er sem hismi í samanburði.
Fáar þjóðir búa við eins gott atlæti hvað varðar húsakost eins og við Íslendingar, við búum öll í vönduðum húsum með örugga og góða upphitun og næga raforku til lýsingar og til að knýja öll þau fjölbreyttu tæki sem verða, eftir kröfu tímans, að vera á hverju heimili.
Var hún góð eða var hún vond? Það má rífast endalaust um kvikmynd Hrafns, Opinberun Hannesar, en eitt er víst; það verður engin niðurstaða í því máli í bráð og lengd.
Unga fólkið í dag er betur sett en foreldrar þess fyrir hálfri öld, sem betur fer. Það er auðveldara að stofna heimili, jafnvel eignast sitt eigið þak yfir höfuðið.
Það hafa verið farnar margar og mismunandi leiðir með lagnir um hús og hýbýli frá því að menn hófu röraöldina, sem er svo merk að sögu hennar ætti svo sannarlega að rita og gleyma nú ekki að geta heimilda hvort sem þær koma frá Hammúrabí, Ágústusi mikla Rómakeisara eða Knud Ziemsen.
Best að viðurkenna það strax; fyrirsögnin er tilvitnun í eitt af höfuðskáldum þjóðarinnar, eins gott að hafa það á hreinu á þessum síðustu og verstu tímum.
Gamall ofnkrani vekur upp hugsanir um gamla tímann, tímann fyrir plast og þrýstitengi. Raunar þarf ekki að fara nema rúm þrjátíu ár til baka til þess, það er ekki lengra síðan þetta efni og þessi lagnatækni kom á heimsmarkað.
Það er mikið búið að lofsyngja jarðvarmann, þetta gull okkar Íslendinga, í þessum pistlum. Þrátt fyrir það skal það gert einu sinni enn, því það er sannarlega góð vísa sem verður aldrei of oft kveðin.
Tveir bíladellukallar deildu harkalega eins og slíkra er von og vísa. Deiluefnið að þessu sinni var heldur einfalt, já mjög einfalt. Hvor væri fljótari að keyra til Akureyrar. Annar sagði tírunn taka fjóra tíma, hinn sagði tvo.
Þá er komið að því. Árla morguns, fyrstu fréttir ljósvakans eru í loftinu, stjörnubjartur himinn, þá birtist hún sem fyrsti vorboðinn. Það er dagsbrúnin í austri.
Fyrir miðja síðustu öld að loknum hildarleiknum mikla, seinni heimsstyrjöldinni, töldu menn að upp væru runnir þeir tímar þar sem maðurinn að lokum væri orðinn ótvíræður herra heimsins með allri þeirri tækni sem þá var þekkt.
Það er með ólíkindum hve miklar framfarir hafa orðið í pípulögnum síðustu þrjátíu árin. Gömlu lagnaefnin lufsuðust við að vera enn á markaði, þókk eða hitt þó heldur sé afturhaldssömum og lítt hugsandi lagnamönnum.
Þeir komu heim eitt kvöldið, hin vaska sveit karla heimilisins, faðirinn og synirnir fjórir á aldrinum frá fermingu til tvítugs. Sumir komu úr vinnu, aðrir úr skóla, einhverjir frá ærslum og leikjum.
Varminn sem streymir upp úr íslenskri jörð, ýmist sem vatn eða gufa er okkar olía eða okkar gull. Það er þó engan veginn rétt að líkja íslenska jarðvarmanum við olíu.
Loksins eftir langa og stranga leit tókst ungu hjónunum að fá leigða litla íbúð í kjallara einbýlishúss á eldri hverfum höfuðborgarinnar. Þau voru alsæl þegar þau settust loksins niður eftir flutning á fátæklegri búslóð, eiginmaðurinn lagði lófa að bústnum maga ungu eiginkonunnar og dæsti.
Vorverkin eru að hefjast, menn eru komnir út í garð, limgerðið klippt, lóðin hreinsuð og blómin fara að stinga kollum sínum upp úr moldinni.
Það er ekki hægt annað en fagna því þegar þessir saklausu pistlar vekja nokkrar öldur eins og raun varð á með þann síðasta. Þar var rætt um val á snjóbræðslurörum, ákaflega sakleysislegt efni við fyrstu sýn.
Eitt sinn ætlaði galvaskur pípulagningamaður að fara yfir kvartanir íbúa í sjö hæða fjölbýlishúsi. Hann undirbjó komu sína með því að dreifa einblöðungi í alla póstkassa þar sem spurt var hvort eitthvað væri að og hvað það þá væri.
Það er í mörg horn að líta fyrir þá sem taka að sér að vera í forystu fyrir húsfélög, sama af hvaða stærð þau eru. Húsfélag þarf ekki að vera stórt til þess að það sé hverskurður af mannfólkinu með kostum þess og göllum.
Ef það er eitthvað sem íslenska þjóð vantar ekki í dag þá eru það græjur, já græjur af öllum mögulegum og ómögulegum gerðum og sortum. Einhver góður íslenskumaður kann að setja hnyflana í þetta, að mörgum finnst, lágkúrulega orð „græjur“.
Er það furða þótt menn hafi dýrkað sólina á norðurhveli jarðar. Það hefur oft verið erfitt að þreyja þorrann og góuna fyrr á öldum, þarf tæplega að fara aftur um aldir, áratugir nægja.
Slíkt gerir auðvitað ekki nokkur maður, ekki nema hann sé rammur bindindismaður, en þá mundi hann ekki aðeins hella helmingnum í vaskinn heldur öllu víninu. Nei, líklega gerir þetta ekki nokkur maður sem á annað borð kann að meta vín.
Áður en lengra er haldið er réttara að segja frá því í nokkrum orðum hvað varmaskiptir er, tæplega hægt að ætlast til að hver húseigandi viti hvaða galdratæki það er, við fagmenn höfum átt fullt í fangi með að skilja skolla.
Úr útvarpstækinu berast heldur hrollvekjandi fréttir á hverjum degi. Ekki einungis um stríð og manndráp, það koma skuggalegar fréttir af sældarlífi okkar Vesturlandabúa.
Þegar 1. þáttur í fjölmiðlafarsa ríkisstjórnarinnar stóð sem hæst var vart um annað talað í kaffitímum á öllum vinnustöðum og ekki síður í heitum pottum, þar gat umræðan orðið það heit að vatnið hitnaði af ákefðinni einni saman svo menn máttu bjarga sér upp úr hver um annan þveran.
Margt getur valdið vatnstjónum og örsköm þeirra má skipta í tvo aðalflokka, gamlar syndir og nýjar. Flest vatnstjón verða vegna gamalla synda og oft er hægt að koma í veg fyrir þau tjón með fyrirhyggju.
Sviss er sérkennilegt land, lítið fjallaland í Ölpunum í miðri Evrópu. Seinni heimsstyrjöldin geisaði 1939–1945, öll lönd umhverfis Sviss soguðust inn í þann hildarleik, en þessu litla fjallalandi tókst að halda hlutleysi sínu sem öll stríðandi öfl virtu.
Sviss er sérkennilegt land, lítið fjallaland í Ölpunum í miðri Evrópu. Seinni heimsstyrjöldin geisaði 1939–1945, öll lönd umhverfis Sviss soguðust inn í þann hildarleik, en þessu litla fjallalandi tókst að halda hlutleysi sínu sem öll stríðandi öfl virtu.
Það er þægileg tilfinning að vera kominn heim heill á húfi eftir að hafa verið á faraldsfæti og í tjaldbúskap þegar flóðgáttir himinsins opnast og hella sér yfir þá sem ætluðu að njóta sólar og útivistar um verslunarmannahelgina.
Það er stór stund í lífi allra, sem á annað borð ná því takmarki, að verða pabbi og mamma. Vissulega getur það tekið á taugarnar að sinna misjafnlega sífrandi ungum, en þær stundir eru fljótar að gleymast þegar litlu ungarnir geisla af kæti og brosa slefandi framan í foreldra sína.
Fram eftir síðustu öld var „hvíti dauðinn“ skelfilegasti sjúkdómur sem lagðist á fólk á öllum aldri og varð mörgum að fjörtjóni. Þessi sjúkdómur er í dag betur þekktur sem berklar og herjar víða um heim, en á Íslandi er hann ekki lengur sú ógn sem áður var, langt frá því.
Hvað er það sem veldur mestum skaða á byggingum hérlendis? Það er ekki nokkur vafi að það er tvennt, annarsvegar eldur, hinsvegar vatn.
Haustjafndægri segir okkur að þá sé sólin á miðri leið niður í dimmustu skuggana, þá er allra veðra von á norðurhveli jarðar, ekki síst á eylandinu sem við búum á.
Enn hafa orðið stórbrunar hérlendis, mikil verðmæti fara forgörðum og margir standa uppi atvinnulausir. Þeir sem í þessum hremmingum lenda fá óskipta samúð, þessi bruni er bara enn eitt óhappið, ekkert við því að gera.
Löngum var baðherbergið í ákaflega föstum skorðum, baðkerið við útvegg og þá undir glugga, salernið og handlaugin annaðhvort til hægri eða vinstri þegar inn var komið.
Stríðið um plaströrin hefur staðið í áratugi á Íslandi. Sterkir „páfar“ hafa í krafti þekkingar sinnar barist gegn því að plaströr væru leyfð til notkunar innanhúss og það voru einkum svonefnd pexrör sem urðu fyrir barðinu á mótstöðu hinna vísu.
Það er þekkt úr dýraríkinu að margar tegundir vilja helst vera í hópi. Má þar nefna tvær fuglategundir, kríuna og æðarfuglinn.
Nú bíða menn þess með óttablandinni eftirvæntingu að kerling ein, Katla að nafni, verði léttari. Nokkuð langt er um liðið frá hennar síðasta burði eða hvorki meira né minna en 86 ár.
Þau eru mörg happdrættin sem litið hafa dagsins ljós hérlendis. Auk þessara stóru, sem rekin eru áratug eftir ártug, eru önnur minni en þó nokkuð lífseig.
Ekki svo að einhver hafi týnt þessu kerfi í orðsins fyllstu merkingu, ekki þannig að það hafi fokið á haf út af vörubílspalli undir Hafnarfjalli; samt sem áður er full ástæða til að leita að því og að allir lagnamenn spyrji sjálfa sig hver hafi orðið örlög þess.
Fyrir rúmum mánuði var spurt í pistli hvort „bídett-ið“ væri fallið í gleymsku. Það er alltaf uppörvandi og ánægjulegt að fá viðbrögð við því sem í þessum pistlum birtist, en ná var slegið mat.
Vart er sá staður á landi hér að hann fagni ekki jólunum með blikandi ljósum og hvers konar skreytingum, jafnt utandyra sem innan.
Eldur og vatn hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda. Vatnið er að sjálfsögðu undirstaða alls lífs, hver mannvera er að miklu leyti byggð upp af vatni og án þess að hafa það til drykkjar gæti enginn lifað.
Það er með ólíkindum hvað ýmislegt, sem við tökum okkur fyrir hendur, verður svo sjálfsagt að tæpast er tekið eftir því. Á þessum köldu vetrardögum í upphafi ársins 2005 finnst öllum sjálfsagt að snjóbræðslukerfi sé við hvert hús og nánast í öllum gangstéttum í gömlu Reykjavík, jafnvel í heilum götum í nýrri hverfum.
Orðin breyta merkingu í tímans rás og stundum tapa þau merkingu sinni með öllu. Aldinn maður þurfti að gangast undir svolitla aðgerð og var búinn undir það sem koma skyldi með margs konar rannsóknum af ungum hjúkrunarfræðingum og látinn svara ýmsum spurningum.
Gólfhitakerfin eru í stórsókn hérlendis, á því er ekki nokkur vafi og það er svo sannarlega ástæða til að fagna því. Þessi þróun er ekki einsdæmi og í rauninni eru þetta áhrif frá þeim löndum sem eru mestir áhrifavaldar í lagnamálum á Íslandi, en það eru Norðurlöndin og Þýskaland.
Íslendingar hafa löngum verið þekktir fyrir að vera skorpumenn, hvort sem það er eða var að drífa töðu í hlöðu, demba steypu í mót, drekkhlaða loðnuskip eða skella á svo sem einum fundi fremstu leiðtoga heims, annað eins og þetta hefur verið barnaleikur.
Líklega eru þeir margir sem ekki taka undir ofangreinda fyrirsögn, en sem betur fer eru ekki allir Íslendingar komnir á hamborgarastigið.
Það er föstudagur síðdegis. Rennihurðir renna hvatlega til hliðar, hún gengur vasklega inn, hann drattast á eftir.
Hversvegna í ósköpunum eyðist svona mikið af heitu vatni? Þannig spurði nýr forstöðumaður stofnunar og fékk hæfa einstaklinga til að kanna það. Orsökin var augljós; barna voru stjórntækin úr sér gengin enda ekki beint á sokkabandsárum, voru jafngömul byggingunni eða rétt að ná þrítugsaldri.
Formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur hefur sett fram djarft kostaboð; að snjóbræðsla verði lögð í veginn yfir Hellisheiði, heita vatnið í kerfið komi frá nýju gufuorkuverinu á heiðinni og síðast en ekki síst vill hann lána peninga í þetta lengsta snjóbræðslukerfi sem komið hefur til tals að leggja hérlendis.
Það eru ríflega þrír áratugir síðan snjóbræðsluöldin hófst á Íslandi. Fram að því höfðu nokkrir stórhuga menn gert nokkrar tilraunir og lagt lítil kerfi sem sum hver plumuðu sig ágætlega.
Á stríðstímum er mikil áhersla lögð á að þróa nýja tækni til að framleiða hverskonar vígvélar og ekkert til sparað. Þegar um hægist, og menn verða sammála um að hætta í bili að drepa hvern annan, er ýmislegt í stríðstólatækninni lagað að gerð ýmissa tækja sem komið geta venjulegu fólki að gagni,
Stundum spretta upp tæknilegar lausnir sem fara um eins og eldur í sinu, eiga sitt glæsta tímabil en falla síðan af stalli eins hratt og þær risu. Það hitakerfi sem átti sér sitt stutta blómaskeið var geislahitunarkerfið.
Við eydum miklu púðri í að ræða um hitakerfi húsa, hvaða kerfi skuli velja, stýringu og lagnaefni. Minna er rækrætt um neysluvatnskerfin en svo kemur að hreinlætistækjunum; þá færist fjör í leikinn.
Streymandi heitt vatn úr jörðu og gjósandi hverir hafa án efa heillað fyrstu landnámsmenn Íslands. Hinsvegar sýna margar nafngiftir landnámsmanna að þeir skildu hvorki upp né niður í þessari furðu.
Þau eru enn í fullu fjöri og ekki annað að sjá en þau ætli að lifa fram í háa elli. Búin að lifa langa ævi, sum hver við strítt myrkranna á milli til að sjá sér og sínum farborða.
Nánast á bakka gömlu hafnarinnar í Keflavík er að rísa háhýsi, alla vega hæsta húsið sem byggt hefur verið í þeim gamla kaup- og útgerðarstað.
Samvinna norrænna pípulagningamanna er ekki ný af nálinni, hún hófst fyrir nokkrum áratugum. Íslenskir pípulagningamenn tóku fyrst þátt í henni fyrir rúmum aldarfjórðungi og þá sem nokkurs konar aukaaðilar, sóttu þing á tveggja ára fresti, en þess á milli var lítið samband við starfsbræður austan ála.
Pistlahöfundar senda ekki einungis frá sér pistla, þeir fá stundum pistla sem svo sannarlega eru orð í tíma töluð.
Tæplega hefur það farið fram hjá nokkrum manni, sem á annað borð fylgist með því sem gerist í heiminum, að stórfrægur og háaldraður danskur útgerðarmaður gaf löndum sínum nýtt óperuhús, sem byggt var á þremur árum við höfnina í Kaupmannahöfn.
Sá fjölmiðill er ekki til á Íslandi sem ekki hefur básúnað fréttir af hermannaveiki sem herjað hefur á Norðmenn. Sú mikla athygli, sem þetta hefur vakið í Noregi, kemur eflaust til af því að hér í landi hafa menn ekki viljað viðurkenna það opinberlega að þessi litla baktería, Legionella pneumophila, væri vandamál
Satt best að segja er það fyrsta sem upp í hugann kemur þegar ofangreind staðreynd blasir við; er ekki mál að linni. Þetta byrjaði ofur sakleysislega árið 1992 og ætlunin var að koma af stað líflegri umræðu um lagnamál þar sem aðallega lærðir skrifuðu fyrir leika.
Húsið var splunkunýtt, fyrstu íbúarnir voru að flytja inn. Allt var þetta ungt fólk fullt af eftirvæntingu, nú voru vonirnar að rætast.
Hvað gerum við þegar okkur verður kalt? Fáránleg spurning, ekki satt, það liggur í augum uppi. Ef ekki er hægt að komast á hlýrri og skjólsælli stað er auðvitað nærtækast að klæða sig betur.
Það tekur ár ef ekki aldir að breyta hugsunarhætti þjóða. Það er ekki einu sinni heil öld síðan Íslendingar bjuggu flestir í mjög lélegu húsnæði.
Það er líklega að bera í bakkafullan lækinn í orðsins fyllstu merkingu að skrifa um vatn, já meira að segja rigningarvatn.
Á síðasta ári var haldin merk ráðstefna í höfuðborg Kína, Beitsjíng, sem hérlendis hefur lengst af gengið undir nafninu Peking og vissulega er sá ritháttur jafngildur, hvorutveggja eru nöfnin jafn langt frá þeim kínverska.
Fyrir nokkru kom póstur frá víðförlum manni, hann hafði flogið víða um heim enda var það hans atvinna. Á síðari árum hefur hann einnig ferðast mikið um Ísland og þar hafði hann margt að athuga við hérlenda klósettmenningu og kemur það vissulega ekki á óvart.
Á skjánum er skeyti, tölvupóstur. Þar er spurt hvaða tegund af ofnlokum húseigandi eigi að velja, hann hafi lesið þessa pistla og sé ákveðinn í að láta setja á sína ofna framrásarloka, ekki bakrásarloka.
Það er langt í frá að sumarið sé búið, því sláum við föstu. Að vísu eru lægðaraðir að herja á hólmann en það þykja vart tíðindi, þær eru á ferðinni allt árið með mismiklum krafti.
Hún var einu sinni vonarstjarna sænskra krata, hæfileikarík, þokkafull og gáfuð kona og allir vissu að einn dag yrði hún forsætisráðherra Svíþjóðar, fyrsta konan á þeim mikilvæga pósti.
Vatnslagnakerfin innanhúss á hinu venjulega heimili hafa lengi verið flokkuð í þrennt, hitakerfi, neysluvatnskerfi og frárennsliskerfi. Tæpast þarf að lýsa tilgangi og verkefnum hvers kerfis, en óneitanlega hefur mesta athyglin beinst að hitakerfinu.
Á borðinu liggur teikning af ofnakerfi í nýju sambýlishúsi, þetta hús er fullbyggt og íbúarnir fluttir inn. Sá sem á teikninguna starir opnum augum, hefur ekki séð hana fyrr, en eftir að hafa skoðað hana stutta stund rennur í gegnum hugann spurningin „hvað er að gerast?“
Það er engin furða að spurt sé hvernig það geti farið saman við hreinlæti og góða umgengni að setja upp þvagskálar á opinberum stöðum sem ekki eru tengdar við vatn svo engin leið er að skola niður því sem franskir karlar kalla þegar þeim er mál.
Þá er enn eitt haustið gengið í garð með lægðum og stormum, en einnig undurfögnum haustlitum í náttúrunni og fallegum kvöldum þegar beljandi rigningin gerir hlé af sinni miskunnsemi.
Það má ekki mikið út af bera í heimsmálum til að olíuverð hækki. Tæplega velkist nokkur í vafa um það að olía er mikilvægasti orkugjafi nútímans og á síðustu áratugum hafa komið fram ýmsar spár um hvenær allar olíulindir þessarar jarðar séu uppurnar.
Það er heldur dapurlegt að allar blokkirnar í Reykjavík, í Mosfellsbæ, Kópavogi eða hvar sem er, blokkir sem eru flestar þrjár hæðir, eru allar eins. Það er með ólíkindum hve einsleitur íslenskur arkitektúr er orðinn, en það eru víst stálmótin ómissandi sem meira ráða útliti húsa af þessari gerð en arkitektinn sem hannar þau.
Fjósum hefur stórlega fækkað hérlendis á undanförnum árum og líklega eru þeir orðnir þó nokkuð margir þjóðfélagsþegnarnir sem tæplega vita hvað fjós er.
Hvað var karluglan að hugsa? Flýr með skottið á milli lappanna frá Noregi, tekur land við fyrsta klettinn sem hann sér, hýrist þar vetrarlangt með hyski sínu og fer síðan í langa göngu vestur með ströndu, göslast yfir stærstu vatnsföll, veður um grösugustu sveitir landsins þar sem stórin tóku mönnum í herðablöð
Á síðustu fjórum áratugum hefur verið geysilega mikil þróun í lagnakerfum og ekki síður hafa komið á markaðinn ný lagnaefni. Það er fróðlegt að heyra frá norrænum þjóðum þegar þar eru metin áhrifin af þessum miklu breytingum.
„Því lengra sem þú sérð til baka er líklegt að þú eigir betur með að sjá inn í framtíðina,“ sagði einn merkur maður að nafni Winston Churchill. Nú er best að nota þetta sem próf til að kanna hve langt menn sjá inn í fortíðina eða hver var þessi maður?
Ekki verður með sanngirni sagt að Íslendingar láti sig ekki minjar varða. Fornleifarannsóknir eru stundaðar á hverju sumri og alltaf finnst eitthvað markvert, gamlar hleðslur, ýmsar leifar mannvistar og það er hátíð hjá fornleifafræðingum þegar jafnvel finnast kuml og heilar beinagrindur.
Það er engin furða þó mikið sé lagt í baðherbergið, hvort sem er við byggingu húss eða við endurbyggingu baðherbergis.
Það er svo sem engin furða þó ný efni, sem viðkoma matvælum, verði umdeild og mæti talsverðri tortryggni í byrjun. Ekki er hægt að segja að plaströr séu splunkunýtt röruefni, en miðað við vatnsrör úr öðrum efnum, þá aðallega málmum, eru plaströrin barnið í fjölskyldunni.
Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að fara enn einu sinni að predika brunavarnir og kynna hér í pistlunum vatnsúðakerfi, sem í daglegu tali er nefnt sprinklerkerfi og er hér með viðurkennt að það orð sé búið að fá þegnrétt í íslensku máli.
Frá því að byrjað var að leggja vatnsleiðslur fyrir drykkjarvatn í hús á Íslandi, fyrir rúmri öld, hafa galvaníseruð stálrör verið algengasta lagnaefnið.
Það var hátt í Höllinni nýlega, endurbyggðri, stærri og betri. Baráttan glumdi milli veggja því hér voru andstæðingar virkjana að hvessa vopn sín.
Þær eru orðnar margar ráðstefnurnar þar sem fjallað hefur verið um hvernig bjarga eigi orkuþörf heimsins. Allir vita að olían og gasið, sem dælt er upp úr jörðinni, endist ekki langt inn í framtíðina, þeir svartsýnustu spá því að þessar lindir verði upp urnar eftir fáeina áratugi.
Það efast víst enginn um að við þurfum loft til að geta lifað eða öllu heldur eina tegund sem er í því lofti sem umlykur okkur, en það er eins og allir vita súrefni.
Sumir segja að fyrstu þrír mánuðirnir ársins séu þeir lengstu, lengri en aðrir mánuðir. Þó segir almanakið annað, að þeir séu rétt og slétt jafnlangir og aðrir sem síðar koma og meira að segja sá stysti, febrúar, er í þessum erfiða hópi.
Fyrirtækið Tengi í Kópavogi er vel þekkt meðal iðnaðarmanna, hönnuða og almennings. Í fjölmörgum heimilum og fyrirtækjum eru þekkt tæki frá Tengi, svo sem Mora blöndunartækin og Ifö hreinlætistækin og sturtuklefarnir.
Gætir þú tekið fyrir í pistli þínum, Lagnafréttir í Morgunblaðinu, það vandamál þegar heitavatnsrör, neysluvatn, fara að stíflast af ryði. Hjá mér rennur heita vatnið á fullu í baðið, en mjög treglega í vaskinn og sturtuna.
Hvarvetna í iðnvæddum löndum eru menn á varðbergi gegn bakteríu nokkurri sem almennt er kölluð legíónella.
Undanfarin ár hefur orðið mikil breyting á vali hitakerfa í íbúðarhús. Lengst af höfðu ofnakerfin verið nær allsráðandi, en gólfhitakerfin hafa verið að vinna á jafnt og þétt í einbýlis- og raðhúsum eða íbúðarhúsum sem eru ein hæð, í mesta lagi tvær hæðir.
Það má kalla það þráhyggju að skrifa pistil eftir pistil um gólfhita, en er ekki næg ástæða til að hafa gólfhita sem pistil dagsins aftur og aftur þó ekki sé úr hefðbundnum predikunarstóli talað, enda ekki vígður maður sem hér predikar, eða hvað?
Það sem við köllum starfsmenntun hefur átt undir högg að sækja á síðustu áratugum. Það er langt frá því að starfsmenntun hafi setið við sama borð og bóknám, en það er kannski ástæða til að árétta hvað er starfsnám og hvað bóknám.
Húsið var byggt af miklum metnaði, tveggja hæða einbýlishús í virtu hverfi í Reykjavík. Að sjálfsögðu var til alls vandað, hitakerfið geislahitun eins og þá var topptiskan, tvö baðherbergi sem ekki var á færi almúgans, en hér var efnamaður síns tíma að byggja upp framtíðarheimili fyrir sig og sína.
Samtök iðnaðarins hafa, ásamt fleiri aðilum, staðið fyrir ágætum vörusýningum í Laugardalshöll á undanförnum árum. Nú var efnt til glæsilegrar sýningar í nýju íþrótta- og sýningarhöllinni við gömlu Laugardalshöllina.
Það var stór dagur hjá fyrirtækinu, klippt á borða, ræður haldnar og skálað í freyðivíni. Til þess var ærinn ástæða; það var verið að flytja í nýtt og glæsilegt húsnæði sem var byggt sérstaklega fyrir hin sérhæfðu verkefni fyrirtækisins.
Það er í eðli okkar Íslendinga, eins og flestra íbúa þessarar jarðar, að hafa ánægju af því að koma saman og sjá keppt í öllu mögulegu, íslenskri glímu, fótbolta og auðvitað þjóðaríþróttinni, handboltanum.
Fyrir hálfri öld og vel það var dökkt yfir íslensku þjóðlífi. Atvinnuleysið var mikið en svo kom herinn 1951 og þá jókst vinnan á Keflavíkurflugvelli.
Víðs vegar á landinu er mikið líf í prentmiðlum, þessum miðlum sem jafnvel áttu ekki að lifa af útvarpið og engan veginn sjónvarpið. En prentmiðlarnir lifa sem betur fer, margir berjast í bökkum en aðrir virðast lifa ágætu lífi.
Eg skildi, að orð eru á Íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu, kvað Einar Benediktsson í kvæðinu „Móðir mín“. Að vísu mun einnig vera hægt að finna texta eftir þjóðskáldið í óbundnu máli þar sem hann kvartar undan orðfæð íslenskunnar.
Þau standa enn og það er búið í þeim. Sum þeirra voru byggð fyrir einni öld en í þeim hefur fólki oft liðið vel ef á annað borð var til matur og eldiviður á köldum vetrardögum.
Veturinn hélt okkur í sínum heljargreipum miklu lengur en við erum vön. Hann sveik okkur nánast um vorið því það skall skyndilega á sumar og sól með óvenjulegum hita miðað við árstíma.
Flestir tengja fljótið mikla „Dóná svo bláa“ við Vínarborg, líklega fyrir áhrif valsakóngsins mikla Jóhanns Strauss. En færri gera sér grein fyrir því að hún á upptök sín í Svartaskógi í Suður-Þýskalandi og á sinni löngu leið alla leið til Svartahafs rennur hún í gegnum margar borgir, þar má nefna Búdapest, Bratislava og Belgrad.
Það þýðir ekki að missa móðinn þó hitastigið sé rétt um 0°C morgun eftir morgun. Vissulega er það óþolinmæði þegar komið er fram til loka maímánaðar og aðeins mánuður til Jónsmessu þegar sólarmangur er hæstur.
Háhýsin miklu, sem einhver orðhagur Íslendingur gaf íslenska nafnið skýjakljúfar, hafa fram til þessa verið í hugum okkar hérlendis amerískt fyrirbrigði.
Hann er ekki einn í heiminum, hann á sér marga albræður og reyndar systur líka. Stundum býr hann á fyrstu hæð eða á annarri eða þriðju, sárasjaldan í kjallaranum.
Norður í Svarfaðardal á bænum Bakka bjuggu bræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi. Þeir hafa löngum verið taldir heimskustu Íslendingar sem nokkru sinni hafa í heiminn fæðst.
Eftir því sem sumarhúsabyggð eykst fjölgar þeim íveruhúsum sem ekki hafa möguleika á tengingu við fráveitukerfi sveitarfélaga. Jafnframt aukast kröfur frá samfélaginu um að engin mengun verði frá skólplögnum frá þessum dreifðu byggðum.
Víða um lönd vinna menn að því hörðum höndum að finna orku í einhverri mynd sem komið getur í stað þeirra orkulinda sem ýmist eru á þrotum eða menn vilja einhverra hluta vegna ekki nýta.
Þegar ekið er til austurs frá Selfossi staldra margir við í Þingborg, gamla barnaskólanum á Skeggjastöðum. Þar sýna konur úr sveitinni prjónaflíkur í miklu úrvali og hefur margur útlendingur farið þaðan út í fallegri lopapeysu.
Þeir voru uppi á síðustu öld og létu svo sannarlega til sín taka í íslensku samfélagi. Þó skoðanir þeirra væru eins ólíkar og hugsast gat áttu þeir samt sömu hugsjón.
Við höfum látið okkur litlu varða fram til þessa hvernig við loftræsum íbúðir og minni byggingar.
Þessum pistlum hefur ætíð verið ætlað að vera fræðandi fyrir hinn almenna borgara og húseiganda. Hins vegar er ekkert haft á móti því að innvígðir lagnamenn lesi þá einnig og eflaust kemur það fyrir þó þeir sumir hafi ekki hátt um það.
Ef innihald sprautunnar á að fara beint í æð eða ef sækja skal blóðsýni þá liggur í augum uppi að það er mikils virði að hjúkrunarfræðingurinn hitti beint í æðina. Það er líka mikilvægt að sá sem skrifar um tæknileg mál hitti „beint í æð“, annars er til lítils á blað sett.
Fréttir vekja mismikinn áhuga. Skipasmíðar eru ekki beinlínis á dagskrá þessara pistla en þó var það frétt um skipasmíðar sem vakti umtalsverðan áhuga.
Flest lagnakerfi tóku stórstígum framförum á síðustu öld, einkanlega á síðari hluta hennar. Eitt lagnakerfi hefur þó tekið litlum breytingum frá dögum Rómaveldis.
Hvernig á húsbyggjandi að rata í gegnum þann flókna frumskóg upplýsinga, fullyrðinga og húsganga þegar hann í bjartsýni sinni ætlar að leggja aleiguna og tekjur næstu ára undir til að byggja draumahúsið?
Tuttugu mánaða stúlka, Ólafía Steinunn Jóhannsdóttir, hlaut annars stigs bruna eftir að hún skrjáfaði frá heita vatninu á baðherberginu á heimili sínu 22. ágúst sl., en vatnið var allt að 70–80° heitt.
Þau eru orðin mörg félögin sem stofnuð hafa verið á Íslandi á umliðnum árum og öldum og líklega á eftir að stofna enn fleiri. Sum verða skammlíf og eftir þau liggur lítil saga.
Loksins virðast menn hafa vaknað upp við vondan draum þegar ungt barn brenndist illa af heitu vatni í handlaug.
Nú á endanlega að finna lausnina á því hvernig koma á í veg fyrir slys af heitu vatni. Nýr formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur reiðir fram 4 milljónir króna úr digrum sjóðum fyrirtækisins og afhendir Sjóvá/Almennum tryggingafélagi.
Það var bráðskemmtileg og upplýsandi grein í Fréttablaðinu í vikunni. Þar var tekið fyrir efni sem rætt hefur verið í þessum pistlum; hvort karlmenn eigi að standa þegar þeir pissa í salernisskál.
Innflytjendur og verslunarmenn hafa haft afgerandi áhrif á þróun lagnamála á Íslandi á undanförnum áratugum. Hjá þeim hafa fagmenn kynnst nýjungum í efnum og verkfærum og það hefur ekki veitt af, því síðustu þrjátíu árin hafa verið allt af því byltingarkennd.
Hólskefla prófkjörs gengur yfir landið, nánast allir stjórnmálaflokkar efna til prófkjöra í flestum kjördæmum. Áður fyrr komu mikilúðlegir karlar saman á lokuðum fundum, stilltu upp á lista, lögðu fyrir fámenna fundi þar sem búið var að undirbúa jarðveginn vandlega og allt samþykkt.
Skáld eiga það til að vera svo hálffleyg að enginn skilur skáldskap þeirra, þau hafa löngum haft sín skáldaleyfi og jafnvel þótt fínt stundum að vera mátulega óræð, sérstaklega í bundnu máli.
Litlir strákar eiga að pissa í klósett. Sitjandi eða standandi, látum það liggja milli hluta að sinni. Þvagskálar eru einnig sérstaklega ætlaðar til slíks verknaðar þar sem þær eru tiltækar eins og á flestum opinberum stöðum.
Það eru mikil tíðindi þegar vatnsskaði verður í nær tveimur tugum fjölbýlishúsa á Keflavíkurflugvelli, í húsunum sem herinn skildi eftir sig. Hvassyrtt umræða verður á Alþingi en hinn venjulegi borgari spyr eðlilega hvernig gerðist þetta og af hverju?
Undanfarið hafa orðið miklir brunar í heimahúsum, svo afdrifaríkir að mannskaði hefur af hlotist. Á hverju ári brennur upp andvirði eins og hálfs milljarðs íslenskra króna og svo virðist sem þessi þjóð líti á húsbruna sem óumflýjanlegar náttúruhamfarir eins og eldgos og jarðskjálfta.
Það er ekki oft sem kuldagráðan nær tveggja stafa tölu í byggð hérlendis, í það minnsta ekki á sunnanverðu landinu.
Hver er sjálfum sér næstur, allir reyna að bjarga sér. Það hefur lengi loðað við landann að leysa málið á eigin spýtur jafnvel þó ekki sé nein þekking í höfði eða höndum.
Sá sem á völina á kvölina segir gamalt spakmæli. Húsbyggjandi leitar eftir góðum ráðum og eðli málsins samkvæmt ætti hann að geta gengið að þeim hjá hönnuðum í mismunandi fögum.
Það er ekkert lát á fréttum, hvorki utan úr heimi né af innlendum vettvangi. Evrópusambandið er að vakna rækilega til meðvitundar um að það þurfi stórtak í að þróa og finna nýja orkugjafa sem sameina tvennt; að menga sáralítið og vera sjálfbærir.
Stundum er hollt að staldra við og hugsa sem svo: Hvers vegna er þetta svona en ekki einhvern veginn öðruvísi? Máttur vanans er ótvíræður og árum saman gerum við eitthvað sem okkur finnst samt sem áður ekki besta leiðin.
Varmafræðin segir okkur að hýbýli okkar þurfi að fá jafn mikinn varma og þau tapa, þess vegna er það misjafnt hve mikið þarf að hita hús.
Í þúsund ár frá landnámi Íslands urðu sáralitlar framfarir í atvinnulífi þessarar þjóðar sem lifði oftast við kröpp kjör, á kaldri eyju lengst út í hafi.
Það hafa mörg félögin verið stofnuð á landi hér og það vekur nokkra furðu þegar það er skoðað hve mörg hafa lifað af bernskuna, sum hver komist á háan aldur.
Hvað er að gerast, er furða þó spurt sé. Eftir vel heppnaða salernisferð með ágætt lesmál í hendi, segjum Moggann, er sturtað niður.
Máltæki eiga sína sögu, sum jafnvel margar, þannig þróast það með tímanum eða í aldanna rás.
Það er gaman og gagnlegt að skoða dýraríkið, þaðan kemur eitt besta sjónvarpsefnið. Atferli dýranna getur kennt okkur mikið um okkur sjálf enda erum við ein af tegundunum.
Það hefði einhvern tíma þótt tíðindum sæta að menn tækju upp á því að keppa í því sem þeir starfa við. Við höfum vanist því í gegnum árin að fylgjast með landsliðum okkar í knattspyrnu, handknattleik og fleiri flokkíþróttum og erum aftur farin að fylgjast með einstaklingum í frjálsum íþróttum.
Það hefur margt breyst til sveita og í íslenskum landbúnaði síðastliðna hálfa öld. Það er ekki mikið lengra síðan að hey var bundið í bagga, reiðingur og klifberi settur á hverja truntu til að reiða heim heyfeng af engjum.
Það var ítarleg umfjöllun um gólfhitakerfi í „Blaðinu“ nýlega sem var fróðleg og upplýsandi að langmestu leyti.
Það var líf og fjör í Kringlunni föstudaginn 23. apríl sl. en þá stóð þar yfir Íslandsmót iðnnema. Alls voru 75 þátttakendur skráðir, nemar við 12 Starfsmenntaskóla hérlendis.
Það var þétt settur bekkurinn á Hótel Nordica þegar plastframleiðandinn Borealis og fulltrúi fyrirtækisins á Íslandi, Árvík hf., boðuðu til fræðslufundar um plastefni í rörum 22. mars sl.
Það er vor í lofti, ekki vafi á því. Hver grasblettur tekur á sig grænan gróðurlit, ekki loku fyrir það skotið að húseigandi leiði hugann að því hvenær tímabært verður að slá.
Við erum að vakna upp við vondan draum. Húsin í Reykjavík og í eldri bæjum landsins eru mörg orðin 50 ára gömul eða jafnvel eldri. Það er sameiginlegt með næstum öllum þessum húsum að skólpkerfið í grunninum, undir gólfplötu kjallarans eða neðstu hæðar, er úr steinrörum.
Í fjölbýlishúsum er skipulag íbúða stundum þannig að baðherbergin eru gluggalaus inni í miðri íbúð. Að sjálfsögðu getur þetta vel gengið en þá þarf að vanda útloftun frá innilokuðu baðherbergjum.
Orkuveita Reykjavíkur er með átak og vakningu til almennings um að lækka hita á kranavatni, sem á hitaveitusvæðum er víða 70–80°C heitt og sumstaðar jafnvel meira.
Það virðist þurfa mikinn fórnarkostnað til að Íslendingar vakni af dvala og doða þegar kemur að öryggismálum á ýmsum sviðum.
Það var því ekki lítið stórvirki þegar ráðist var í að byggja fyrstu verkamannabústaðina í Reykjavík fyrir meira en sjö áratugum, hvorki meira né minna en 70 íbúðir. Þessar byggingar standa enn við Hringbraut, vestan Elliheimilisins Grundar og við nærliggjandi götur.
Vel getur verið að kvenkyns lesendur fetti fingur út í fyrirsögn þessa pistils. Á ekki að gæta systranna líka?
Það er tæpast hægt að opna svo blað eða tímarit að ekki birtist þar auglýsingar um heita potta. Svo sem engin furða, markaðurinn er geysimikill, hver maður vill hafa heitan pott heima hjá sér og ekki síður í sumarhúsinu ef viðkomandi er svo vel stæður að eiga slíkt.
Óvinur mannkyns númer eitt í dag heitir koltvísýringur á íslensku, á ensku Carbon Dioxid, alþjóðleg merking CO2. Hver er þessi ófreskja?
Frétt í Morgunblaðinu vakti athygli, frétt frá nágrönnum í Noregi, en þar sagði m.a.: „Norsku neytendasamtökin og norska bílgreinasambandið hafa komist að samkomulagi um að engir bílar geti talist grænir eða umhverfisvænir
Ekkert þykir sjálfsagðara nú til dags en að allir landsmenn eigi óheftan aðgang að gnægð af góðu drykkjarvatni. Hvert einasta þorp, hver einasti kaupstaður og talsvert af strjálbýli landsins hefur sína eigin vatnsveitu.
Hér er ekki meiningin að ræða um Vísindakirkjuna, Tom Cruise eða alla rugludallana í Hollywood. Enda engin ástæða til; svo langt þarf ekki að fara til að sjá það að augljóslega eru uppvakin ný trúarbrögð í heimi hér þeirra sem aðallega trúa á að hið illa sé til.
Þessi fullyrðing, að engjasláttur sé hafinn, er meira en hálfri öld of seint á ferð. Líklega þekkist ekki annað í dag en að heyfengur sé af ræktuðu landi en allt fram á síðustu öld var víða heyjað á útengi og þá sérstaklega á flæðiengjum.
Það er að bera í bakkafullan lækinn að ræða um Grímseyjarferjuna margumtöluðu. En óneitanlega verður þetta klúðursmál til að upp í hugann kemur annað og miklu eldra klúðursmál þar sem opinberir aðilar áttu ekki litla sök.
Það var mögnuð grein á síðum Morgunblaðsins miðvikudaginn 22. ágúst um vandamál Norðmanna vegna heitra potta. Nú er það svo að heitir pottar eru ekki nærri því eins útbreiddir í Noregi og hérlendis enda eiga þeir ekki þann fjársjóð sem jarðvarminn er okkur.
Það er mjög líklegt að það séu galvaniseraðar kranavatnslagnir, öðru nafni neysluvatnslagnir, í miklum meirihluta húsa hérlendis. Ekki er ólíklegt að það séu allt að 90% húsa með slíkar lagnir.
Skömmu fyrir síðustu aldamót, eða fyrir svona áratug, fór að bera á hvímleiðum hlut í nýjum eða nýlegum húsum á höfuðborgarsvæðinu. Þegar heimilisfólk kom á fætur árla dags og ætlaði að fá sér silfurtært kalt vatn úr krana var það stundum hvorki tært né kalt.
Engan óraði fyrir því þegar fyrsti pistill Lagnafrétta birtist 1992 að þeir yrðu enn lifandi 15 árum síðar en það er þó staðreynd. Í þessum pistlum hefur verið reynt eftir bestu getu að upplýsa hinn almenna borgara um ýmislegt varðandi lagnir og lagnakerfi og vonandi hefur það borið nokkurn árangur.
Í Svíþjóð er verið að setja í gang mikilvæga áætlun sem þarlendir nefna „Milljónaprógrammið“. Þetta snýst um endurbætur og skipulegt viðhald á húsum sem byggð voru á árunum 1960-1975.
Við erum vön því hérlendis að borga heita vatnið eftir mæli, greiðum ákveðið gjald fyrir hvern rúmmetra af heitu vatni. Engan veginn er hægt að segja að íslenska hitaveituvatnið sé dýrt og svo er það mengunarlaust að mestu, sem er ekki lítill kostur.
Það virðast margir hafa vaknað upp við vondan draum þegar þeir gerðu sér grein fyrir að kalda, tæra íslenska drykkjarvatnið er síður en svo ókeypis. Hvernig má það vera, það rennur ómælt inn á hvert heimili eða er ekki svo.
Alþjóðlegu samtökin WorldSkills halda annað hvert ár heimsmeistaramót þar sem keppt er í hvers konar handverki eða iðngreinum. Þetta kunna mörgum að þykja tíðindi, en þetta er ekki nýtt af nálinni.
Það er engin furða þó sumarhúsaeigendur á „köldum“ svæðum fái sér rafhitaða potta á svæðum þar sem ekki er völ á jarðvarma. Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að segja enn einu sinni að það er jafn hlálegt að fá sér rafhitaða potta þar sem völ er á jarðvarma.
Lengst af síðustu öld voru hitakerfi, ef þau á annað borð voru lögð í hús, ofnakerfi. Í upphafi þekktist vart annað en að ofnar væru niðurungir pottofnar, sem enginn barnaleikur var að rogast með upp á hæðir, því þá þekktist ekki að við nýbyggingar risu himinháir kranar til að létta mönnum störfin.
Vonandi hefur það ekki farið fram hjá neinum að Orkuveita Reykjavíkur hefur hrundið úr vör baráttu gegn slysum af heitu kranavatni. Vissulega leggjast fleiri á árar, en þetta nær aldrei tilgangi sínum nema það takist að vekja almenning til vitundar um að hér er mikil alvara á ferðum.
Eitt hvimleiðasta vandamál, sem húseigendur hafa átt við að búa á undanförnum árum, er að fá mengað kalt drykkjarvatn úr krananum. Þetta hefur sérstaklega verið útbreitt á höfuðborgarsvæðinu, en einnig vítt og breitt um landið.
Það hefur ekki skort umræðuefnið hjá landanum að undanförnu. Hver djúpa lægðin hefur komið að og yfir landið með tilheyrandi veðurofsa, hífandi roki og bullandi rigningu.
Það hafa margir verið óánægðir með þá umfjöllun sem í þessum pistlum hefur verið um rafhitaða potta og ekki síst þá staðreynd að í vatnið í þeim verður að blanda klóri.
Það hefur löngum verið deilt um það hvað húseigendur, heimilisfedur og húsfreyjur, geti gert til viðgerða á ýmsum þeim búnaði sem er á hverju heimili.
Kuldinn næðir, skafrenningur æðir yfir alla vegi, það er eins og að aka gegnum ullarbreiður. Ekki tekur betra við þegar ofanhríðin bætist við 15 metra á sekúndu storm og svo er slydda og rigning á næsta leiti.
Ekki er víst að allir viti hvað við er átt þegar talað er um föstu, enda hefur hún í gegnum aldirnar ekki verið tekin jafnhátíðlega hérlendis sem í suðlægari rammkaþólskum löndum.
Það er fullmikið sagt að geislahitun hafi nokkurn tímann dáið drottni sínum því að fjölmörg hús eru með því hitakerfi í dag, hús sem byggð voru á árunum frá 1950–1970.
Líklega á þetta ekki við alla Selfyssinga enda mátti víst ekki miklu muna í kuldakastinu að þeir hefðu nægilega mikið af heitu vatni til að halda hita á öllum í sveitarfélaginu.
Það þarf að skipta um hengilampann yfir borðkróknum. Tæplega getur það talist flókið en þó fá sumir rafvirkja til verksins.
Stundum er sagt að mannveran sé einn allsherjar vani, það sem einstaklingurinn hefur gert í gær gerir hann í dag og mun gera á morgun. Ekki er nokkur vafi á að þessi eiginleiki, vaninn, getur verið af hinu góða og gagnlega.
Augu manna eru að opnast meir og meir fyrir því að maðurinn í nútímahúsinu fína þarf ekki aðeins rétt hitastig; rétt rakastig og hreint loft skipta þar einnig miklu máli.
Það er líklega of snemmt að staðfesta, og því síður að lofa, að vorið sé komið. En mikil lifandis óskapleg breyting er samt í umhverfi og náttúru þegar daginn lengir, vorjafndægur að renna upp og hægt að sjá sólina hreinsa vegina mörgum sinnum betur enn nokkur skafari frá Vegagerðinni er fær um.
Nú er hnípin þjóð í vanda, krónan hríðfallin og vart hægt að velta sér upp úr sömu lystisemdum og þeim sem nýríkir kaupaukamenn hafa legið í síðustu ár.
Mjór er mikils vísir. Fyrir fáum áratugum fór flugumferðarstjórinn Sigurjón Sigurjónsson að afla sér aukatekna með því að flytja inn fáa lagnahluti, einkum til hjálpar við tengingu hreinlætistækja.
Á kynningarfundi Tengis og Redan nýlega var komið með aðgerðir hætti inn á hættuna af of heitu kranavatni. Hitinn á vatninu er grafalvarlegt mál, af heita vatninu, sem er okkar miklu gæði, hafa ekki aðeins margir hlotið hrikaleg brunasár, það hafa einnig orðið dauðaslys af völdum þess.
Lagnafélag Íslands var stofnað 1986 og er því á besta aldri, rúmlega tvítugt. Félagið hefur verið mikilvirkt á sinni stuttu ævi.
Það er munur að vera karlmaður og pissa standandi er gamalt karlagrobb sem oft hefur heyrst þegar karlkynið vill hreykja sér. Þó er líklega ekki meiri sóðaskapur að neinu á heimili en þegar karlar pissa standandi í klósett, líklega munu margar húsfreyjur og eiginkonur taka undir það.
Á undanförnum árum hefur það aukist mjög, ekki síst í húsum yngri en tuttugu ára, að neysluvatnslagnir hafa farið að skemmast og skila lélegu og menguðu vatni.
Íslendingar eru áhlaupaþjóð svo sem til að færa út landhelgi, halda fund æðstu og valdamestu leiðtoga heims, hirða töðu af túni eða ausa upp síld. Slík verkefni eru áhlaupavinna sem þarf að taka í skorpu, síðan búið og allir berja sér á brjóst; sjá hve dugleg og skörp vor litla þjóð er.
Það má teljast merkilegt að þó nokkuð hefur varðveist af skjölum frá hinum myrku miðöldum hérlendis en það hefur einnig mikið glatast.
Fyrir nokkrum áratugum var gas einn tryggasti fylgifiskur pípulagningamanna. Annars vegar gas og súr til logsuðu, sérstaklega var það mikið notað þegar geislahitun var lögð í fjölmörg hús á árunum 1950-1970, hins vegar propangas sem notað var til að bræða blý eða brennistein til að hella í múffur á potttrörum
Stundum lendir rangt orð inn í texta og það gerðist því miður í síðasta pistli þegar umræðan var um þann sterka áróður sem hérlendis sem erlendis er fyrir notkun dísilbíla í stað bensínbíla.
Líklega hafa höfuðborgarbúar haft nokkurn beyg af því að fara á jarðskjálftasvæðið austan fjalls, frekar fáir komu yfir heiðina til að sitja aðalfund Lagnafélags Íslands á Selfossi aðeins tveimur sólarhringum eftir Suðurlandsskjálftann mikla.
Það er árétta víða í hinum tæknivædda heimi að byggja hátt upp í loftið. Þekktastir eru skýjakljúfar Bandaríkjanna, þar sem baráttan um lóðir og lendur hafa átt mikinn þátt í byggingu þeirra.
Eitt af því hvimleiða sem húseigendur hafa þurft að búa við vítt og breitt um landið er að galvaniseruð kaldavatnsrör hafa ryðgað að innan og þá verður drykkjarvatnið heldur ókræsilegt. Það verður mórautt á litinn, einkum á morgnana eða þegar vatnið hefur verið óhreyft í leiðslunum í nokkra klukkutíma.
Enginn er búmaður sem ekki kann að berja sér segir gamalt máltæki. Að undanförnu hefur þetta fengið nokkuð nýja merkingu; það er enginn maður með mönnum nema hann sjái eymd og volæði í hverju horni, krónan hrunin niður fyrir öll fyrri mörk, verðbólgan á skriði upp á við og minnkandi kaupmáttur.
Það er olíukreppa í heiminum og verð á olíu hefur náð hæðum sem engan óraði fyrir að gæti orðið staðreynd.
Þegar gesti bar að garði til sveita í gamla daga þótti hverri húsmóður það mikil skömm ef hún gat ekki boðið upp á helst tíu sortir af bakkelsi og helst skyldi vera súkkulaði í bollum á undan kaffinu.
Líklega eru það ekki nema einstaka gamlir geirfuglar sem átta sig á hvað vatnshrútur er. Eitt er víst; hann mundi lítið gagnast ám um fengitímann enda ekki af holdi og blóði.
Það væri synd að segja að það væri ekki áhugi á vatnshrútum hérlendis. Ýmsir sjá nýja möguleika svo sem að fá tæki til að dæla vatni í bústaði á afskekktum stöðum þar sem ekki er völ á rafmagni.
Fyrir nokkru var það í fréttum að framtaksamir Rúmenar hefðu farið um landið og selt vita verðlaust glingur sem glóandi gull. Þetta er víst ekki í fyrsta sinni sem fólk kemur frá útlöndum til að reyna að blekkja auðtrúa Íslendinga.
Hitametin voru að falla um mánaðamótin, sól skein í heiði og allir voru léttklæddir og vonandi glaðir í lund. Margir þeyttust um landið með tjaldvagna eða hjólhýsi í eftirdragi, aðrir fara til útlanda til að leita frekari ævintýra og kannski enn þá meira sólskins.
Þegar pistillinn „Lagnafréttir“ hóf göngu sína fyrir sextán árum var búist við því að um efni pistlanna yrðu stundum kröftugar rökræður, jafnvel búist við deilum. Það hefur hins vegar orðið minna úr hinni upplýstu opinberu rökræðu.
Við bruna fæðast tvíburabræður sem nefnast koltvísýringur CO² og kolsýringur CO. Hver sem fer með bíl í skoðun getur séð hve mikið af þeim tvíburabræðrum er í pústinu sem frá bílvélinni kemur.
Lítið þarf engan veginn að vera tómur bölmóður hér á landi, langt frá því. Það eru fáar þjóðir sem búa við jafn hreina og ódýra orku til upphitunar og við Íslendingar, jarðvarminn er að mörgu leyti miklu dýrmætari orkugjafi en olía.
Monsúnrigningar í Asíu steypa gífurlegu vatnsmagni yfir víðáttumikil landsvæði á Indlandi og Bangladess um þessar mundir.
Ríkustu og voldugustu ríki heims, hin svokölluðu G8-lönd, komu saman til fundar í Japan á þessu sumri. Meðal ákvarðana sem þar voru teknar var að efla skyldi baráttuna gegn koltvísýringi CO2, en það er orðin alheimstrú, byggð á úrskurði Vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna...
„Einangrið húsin ykkar betur, við stefnum inn í nýja litla-ísöld álíka þeirri sem var á 17. öld. Þá verða veturnir mjög kaldir á Norðurlöndum.“ Þannig mælti sænski fyrirlesarinn Fred Goldberg í fyrirlestri sínum er hann hélt í Norræna húsinu 11. sept. sl.
Þessi pistill er í rauninni framhald af þeim síðasta þar sem sagt var frá fyrirlestri Fred Goldberg í Norræna húsinu 11. sept. sl. Kenningin, sem Fred lýsti þar um loftslagsmál, er í stuttu máli sú að áhrif mannsins og brennsla á kolefnum hafi nær engin áhrif á loftslag í heiminum...
Þegar október gengur í garð er ekki nokkur vafi á því að það er komið haust. Vonandi hefur það í för með sér að nokkurt hlé verði á þeirri yfirgengilegu vætutíð sem hefur dunið á þessu eylandi í norðurhöfum, raunar heldur vætan áfram að koma en nú sem snjór.
Ekkert fannst.